Læknaneminn - 01.12.1959, Blaðsíða 4
LÆKNANEMINN
Qunnar (Bienng lœknir:
ERYTHROBLASTOSIS FOETALIS
(ErincLi flutt á fundi í Félagi Lœknanema þ. 16. 2., 1959).
Erythroblastosis foetalis er
sjúkdómur, sem hlýtur að vera
jafngamall mannkyninu, því hann
er nátengdur blóðflokkunum. Lýs-
ingar á þessum sjúkdómi má finna
í ritum Platers allt frá því herr-
ans ári 1641. Orth lýsti Kernic-
terus árið 1875. Ballantyne varð
fyrstur til að lýsa Hydrops foe-
talis árið 1892 og Rautmann gaf
fyrstur manna sjúkdómnum nafn-
ið Erythroblastosis foetalis 1912.
1932 sýndi Diamond, Blackfan
og Baty fram á það að Hydrops
foetalis, Icterus gravis og Haemo-
lytisk Anaemia í nýfæddum börn-
um voru allt tilbrigði af sama
sjúkdómnum.
Verulegur skriður komst þó
ekki á þessi mál fyrr en á árim-
um 1939—1940, þegar Levine,
Stetson, Landsteiner og Wiener
uppgötvuðu Rh. blóðflokkana og
samband þeirra við Erythroblas-
tosis foetalis.
Þó það hafi komið í ljós á síð-
ari árum, að fjöldi annarra blóð-
flokka koma hér til greina, þá er
það langalgengast að Erythro-
blastosis orsakist af því að rauðu
blóðkorn barnsins innihálda Rh-
faktor, sem móðurina vantar, þ.
e. a. s. barnið eða öllu heldur fóstr-
ið er Rh positivt, en móðirin Rh
negativ. Komist fósturblóðkornin
í gegnum placenta inn í blóðrás
móðurinnar, hvetja þau blóð móð-
urinnar til að framleiða mótefni,
svokölluð antibodies gegn Rh-
faktornum. Fari þessi mótefni í
gegnum placenta inn í blóðrás
fóstursins, festast þau á blóðkorn-
in og eyðileggja þau. Venjulega
framleiðir fóstrið ný bióðkorn
jafnóðum, í stað þeirra sem eyði-
leggjast, en fyrir kemur að blóð-
myndunarkerfið hefir ekki við
eyðileggingunni, barnið verður
blóðlítið og getur jafnvel dáið af
þeim sökum í fósturlífi.
Þegar rauð blóðkorn brotna
niður og barnið verður blóðlítið
myndast jafnframt bilirubin og
barnið verður fljótlega gult eftir
fæðingu.
Þegar hinn svokallaði Rh-fak-
tor var uppgötvaður virtist sam-
band hans við Erythroblastis vera
einfalt. Við frekari rannsóknir
kom hins vegar í ljós, að málið
var flóknara en áhorfðist í fyrstu
og verður stöðugt flóknara eftir
því sem kunnátta okkar á þessu
sviði eykst. Rh-faktorinn reynd-
ist ekki vera einn blóðflokkur,
heldur heill hópur blóðflokka.
Hingað til hafa verið uppgötvaðir
a. m. k.18 blóðflokkar innan Rh
kerfisins. Meðal þessara 18 flokka
eru þeir 6, sem mestu máli skipta
og þeir mynda aftur 3 pör. Þessir
blóðflokkar eru C (Rh’), D (Rh°),
E. (Rh”) og c (hr’), d (hr°), e
(hr”). I mannsblóði finnast ávallt
einhverjir 3 þessarra 6 blóðflokka
og þá í mismunandi samböndum.
Sem dæmi má nefna: C d e, c D e,
C d e, c d e, o. s. frv.