Læknaneminn - 01.12.1959, Blaðsíða 17
LÆKN ANEMINN
17
Dr. med. BJÖRN SIGURÐSSON
IN MEMORIAM
Björn Sigurðsson dr. raed. for-
stöðumaður Tilraunastöðvar Há-
skólans í meinafræði að Keldum
lézt 16. október síðastliðinn.
Björn var aðeins 46 ára gamall,
fæddur 3. marz 1913. Hann lauk
prófi í læknisfræði frá Háskóla
íslands vorið 1937 eftir 5 ára nám.
Næsta ár var hann kandídat á
sjúkrahúsi Hvítabandsins og
starfaði jafnframt á Rannsóknar-
stofu Háskólans. Síðan var hann
á þriðja ár við nám og vísinda-
störf í Danmörku. Fyrstu tvö ár-
in við Carlsbergfondets biologiske
Institut, þar sem hann naut styrks
úr Generalkonsul E. Carlsen og
Hustrus Mindelegat og frá Lands-
foreningen til Kræftens Bekæmp-
else, og síðan á Statens Serum-
institut. Þegar heim kom, starfaði
hann aftur nokkra mánuði á
Rannsóknarstofu Háskólans, en
fékk styrk úr Rockefellersjóði og
var tvö ár við veirurannsóknir í
Bandaríkjunum við „The Rocke-
feller Institute for Medical Re-
search“ í Princeton.
Þegar heim kom, hvarf hann
aftur að starfi við Rannsóknar-
stofu Háskólans og vann þar
næstu tvö árin, en 1. janúar 1946,
aðeins 32 ára gamall, var hann
skipaður forstöðumaður hinnar
nýstofnuðu Tilraunastöðvar á
Keldum.
Björn varð doktor frá Hafnar-
háskóla í marz 1955. Var doktors-
vörnin byggð á ritgerðum, er birzt
höfðu í vísindaritum á árunum
1945—1952, og fjölluðu um ,,Im-
munological studies on Paratuber-
culosis,“ en paratuberculosis er
garnaveiki í jórturdýrum, einkum
sauðfé og nautgripum, og orsak-
ast af sýruföstum stöfum, —
mycobacterium paratuberculosis.
Fann Björn antigen, sem nú er not-
að í komplementspróf við grein-
ingu á garnaveiki og bjó til bólu-
efni gegn sjúkdómnum.
Undanfarin ár beindist athygli
Björns mjög að sérstökum flokki
sjúkdóma, sem hann nefndi „ann-
arlega hæggenga smitsjúkdóma“.
Koma þar undir visna, þurramæði,
votamæði og riða, en það eru allt
sjúkdómar, sem unnið er við á
Keldum. Einnig skipaði hann í
þennan flokk júgurkrabbameini í
músum, Rous-sarkmeini í hænsn-
um, músaleucaemiu og nýrna-
krabba í froskum. Þetta eru
allt hæggengir, banvænir veiru-
sjúkdómar, og mun Björn hafa
ætlað, að ýmsir mannasjúkdóm-
ar, sem orsökin er enn óþekkt
að, ættu eftir að skipa þenn-
an flokk. Setti Björn þessar
kenningar sínar fram í vísinda-
Framhald á hls. gl.