Læknaneminn - 01.12.1959, Page 6
6
LÆKN ANEMINN
byggist á þeirri grundvallar reglu,
að stærstur hluti þeirra mótefna
(antibodies), sem áhrif hafa á
Rh blóðflokkana eru svokölluð
ófullkomin (incomplete, blocking)
antibodies, þ. e. a. s., þegar þau
absorberast á rauðu blóðkornin,
brjóta þau blóðkomin niður, án
þess að agglutinera þau fyrst.
Coombsserum hefir hinsvegar
þann eiginleika að breyta þessum
ófullkomnu antibodies þannig að
þau agglutineri rauð blóðkorn áð-
ur en þau brjóta blóðkomin niður.
Jákvætt Coombspróf er sönnun
þess að mótefni frá móðurinni
finnst í blóði barnsins og þá um
leið, að barnið hefir Erythroblas-
tosis.
Coombsprófið er gert þannig,
að tekin eru blóðkom frá barn-
inu og sett út í Coombs seram.
Hafi antibodies frá móðurinni
absorberast á blóðkorn bamsins
hlaupa blóðkornin í kekki við
þetta.
Að diagnosis fenginni er þraut-
in þyngri að ákveða hvort gera
þurfi blóðskipti.
Tilgangur með blóðskiptum er
í fyrsta lagi að vinna bug á blóð-
leysinu, þ. e. a. s. gefa barninu
ný blóðkorn í stað þeirra sem
þurrkast út fyrir áhrif frá mót-
efnum móðurinnar. Það er auð-
vitað frumskilyrði, að blóð sem
notað er við blóðskipti sé Rh
negativt. Væri notað Rh positivt
blóð, myndu donor blóðkom eyði-
leggjast jafnóðum og þau bæmst
inn í blóðrás barnsins.
I öðru lagi er tilgangurinn með
blóðskiftum að reyna að fjarlægja
sem mest af bilirubin úr líkama
barnsins, til að forða því frá Ker-
nicterus.
Serumbilirubin á að vera innan
við 4 mg.% við fæðingu. Fari
bilirubin hinsvegar upp fyrir 20
mg.% á fyrstu 3—4 dögum eftir
fæðingu, er mikil hætta á, að barn-
ið fái Kernicterus. Sem dæmi má
nefna skýrslur Mollisons og Cut-
bush frá 1949. Þessir höfundar
fundu ‘Kernicterus í 60% þeirra
tilfella sem höfðu serumbilirubin
yfir 20 mg.% á fyrstu dögunum
eftir fæðingu, en engan Kernic-
terus ef serumbilirubin var fyrir
neðan 18 mg.%.
Einnig er rétt að geta þess að
70% þeirra barna, sem fá greinil.
Kernicterus deyja, fái þau enga
meðferð.
Þegar tekin er ákvörðun um
hvort gera skuli blóðskiptl, er
farið eftir ákveðnum reglum (in-
dikationum). Það er e. t. v. tekið
nokkuð sterkt til orða að segja
að reglurnar séu ákveðnar, því
segja má að sérhver meirihátt-
ar spítali erlendis hafi sínar eig-
in reglur.
Ástæðan fyrir hinum breytilegu
reglum er fyrst og fremst sú, að
einungis eru um það bil 12 ár síð-
sn farið var að nota blóðskipti að
nokkru ráði. Það hefir ekki unn-
izt tími né revnsla til þess ennþá,
að koma reglunum í fast horf.
Sem dæmi um reglur fyrir blóð-
skiotum verða hér sýndar reglur
hær, sem notaðar eru við háskóla-
sjúkrahúsið í Minnesota.
Jákvætt Coombspróf + 1 af
eftirfarandi atriðum:
I) Naflastrengs Hgl. < 13.6
srm.% (95%)
II) Naflastrengsbilirubin >
3.5 mg.%.
III) Bilirubin hækkun á
fyrstu 12 klst., sem nem-
ur meira en 10 mg.%.
V) Fyrirburður.
ákvætt Coombspróf + 2 af eft-
..arandi atriðum:
I) Antibodytiter hjá móður-