Læknaneminn - 01.12.1959, Qupperneq 12
12
LÆKNANEMINN
jafnlangur tími á medicine. Nefn-
ist stúdentinn dresser á kirurgisku
deildinni, en clerk á þeirri medi-
cinsku. Þarna fær stúdentinn 8—-
10 sjúklinga, sem hann fylgist
alveg með, tekur journala, fylgist
með rannsóknum, operationum o.
s. frv. Verður hann á stofugangi
að vera reiðubúinn að svara öll-
um spurningum, sem læknirinn
kann að bera fram varðandi
sjúkrasögu sjúklinganna, hvers
vegna þessi eða hin rannsóknin
hafi verið gerð o. s. frv. Öðrum
sjúklingum þarf hann ekki að
skipta sér af, frekar en hann sjálf-
ur vill.
Að þessum kúrsusum loknum
fylgja 3 mán. á Medical Out-
Patients’ Department og 3 mán. á
Surgieal Out-Patients’. Á þessar
deildir koma sjúklingar, sem eru
til eftirlits og meðferðar, en búa
úti í borginni. Ekki eru þó stú-
dentar á þessum deildum alla
jnorgna vikunnar, heldur ganga
þeir á dermotologiska deild og
berkladeild jafnframt.
Þá taka við 3 mán. á gyn. og
obstetric, 1 mán. á Fevers og
löks 3 mán. á medicine og kirurgi
sem revision.
Jafnframt kúrsusum sækja stú-
dentar fyrirlestra. Árinu er skipt
í 3 semester, 10 vikur hvert. Kom-
ast kennarar yfir námsefnið á 1
ári og byrja þá nýja umferð. Ann-
ars má segja, að það, sem ein-
kennir skipulagið, sé, að megin-
áherzla er lögð á bedside teaching.
Lokapróf (Third M.B.) er tek-
ið eins og áður segir eftir 3 ára
nám í kliniska hlutanum. Hafa
nemendur þó lokið pathologiu og
bacteriologiu x/o ári áður.
Ég vil taka það fram, segir
John, til að forða misskilningi, að
hér lýsi ég námi við St. Bartholo-
mew’s Hospital, þar sem ég lærði,
en ég býst við, að námstilhögun
sé svipuð, að minnsta kosti við
hina spítalana í London.
Hve gamlir eru stúdentar, er
þeir útskrifast?
Yfirleitt 24—26 ára. Að prófi
loknu tekur við kandídatsstarf í
6—12 mánuði, áður en þeir geta
farið að. praktisera.
Margt kvenfólk í læknisfræði?
Ég mundi segja ca. 5—10%
nemenda. Annars var áður fyrr
sérstakur læknaskóli, Royal Free
Hospital, sem eingöngu var ætl-
aður kvenstúdentum, en eftir að
National Health Service komst á
1948 fór sá skóli einnig að taka
á móti karlmönnum.
Hvernig er fjárhagsafkoma ?
Um 80 % nemenda njóta
styrkja, ýmist frá ríki eða sýslu.
Hins vegar er lítið um styrki frá
skólunum. Yfirleitt eru þessir
styrkir allgóðir. Auk þessara
styrkja er ýmislegt gert til að
létta félitlum nemendum námið.
Fyrir ca. 1 £ á ári geta stúdentar
t. d. gerzt meðlimir í Book Lend-
ing Library, og fá þeir þá lán-
aðar námsbækur til langs tíma og
spara sér þannig kaup á þeim.
Students’ Union útvegar fría leik-
húsmiða, afslátt á aðgangseyri að
skemmtistöðum o. s. frv.
Hvað getur þú sagt um St.
Bart’s Hosp. ?
Aðalspítalinn er 5 hæða hús. Á
hverri hæð eru 2 firms eða deild-
ir, medicinsk og kirurgisk. Eru
þær spegilmynd hvor af annarri.
Á hverri deild er ein stór 30 manna
stofa og svo minni 1—2—3 manna
stofur. Alls eru ca. 70 sjúklingar
á deild eða um 140 á hverri hæð.
Á efstu hæðinni eru svonefnd
professorial units, þ. e. medicinska
og kirurgiska deildin, sem lýtur
stjórn prófessoranna. Læknarnir
virðast að einhverju leyti færast