Læknaneminn


Læknaneminn - 01.12.1959, Side 14

Læknaneminn - 01.12.1959, Side 14
LÆKNANEMINN H Skákþáttur. Það kann að virðast undarlegt en staðreynd er það engu að síð- ur, að skákþáttur hefur að heita má skipað sinn fasta sess í blaði læknanema. Menn kynnu að velta því fyrir sér, hvað skák og læknis- fræði ættu í rauninni sameiginlegt, og sennilega finna lítið jákvætt í því efni, nema ef vera skyldi það eitt, að við hvorutveggja þarf mikla nákvæmni, rökrétta hugsun, þrek og þolinmæði. En hvað er ekki það, sem krefst alls þessa, eigi góður og giftudrjúgur árang- ur að nást? Miklu nær lægi að benda á þann reginmun, sem felst annarsvegar í vígum og mann- drápum á skákborðinu og hins vegar þeirri viðleitni og takmarki læknisfræðinnar að auka og bæta mönnum lífið. En sleppum þessari fílósófíu. Hitt mun mála sannast, að þeir ágætu menn og konur, sem ritstýrt hafa blaði læknanema, munu hafa minnst hins forn- kveðna, að maðurinn lifi ekki á brauði einu saman og þótt til- hlýðilegt að hafa eitthvað af efni blaðsins um annað en læknisfræði- leg málefni og hagsmunamál læknastúdenta. Með þessum þætti verða manna- skipti við þáttinn en hann hefur nú um árabil verið í höndum ágæts skákmanns í hópi lækna- nema. Undirritaður, sem við tek- ur, er hvorki skáksnillingur né sérfróður maður á þessu sviði og verður í því efni að biðja fyrir- rennara sinn velvirðingar á því, að honum skuli ekki hlotnast verðugri arftaki. Ég mun ekki hafa þann hátt á þeim skákþátt- um, sem ég kem til með að sjá um í blaðinu, að kenna væntanleg- um lesendum byrjanir, endatöfl eða hertækni í miðtafli. Kemur þar hvortveggja til, að þekking er af skornum skammti svo og hitt, að seinvirkt yrði að koma slíkum fræðum á framfæri á litlu rúmi kannske þrívegis á ári hverju. Hins er svo einnig vert að gæta, að það að ætla sér að kanna stigu skákarinnar (en manntaflið er nú á sinn hátt orðið heil vísinda- grein) og verða þar næsta alvit- ur, krefst meiri tíma en lækna- nemar geta með góðu móti komið til með að hafa aflögu og væri því næsta óráðlegt. Ég mun birta í þáttunum skemmtilegar skákir vegna endema svo og skákþraut- ir en þær eru að mínu áliti mun skemmtilegri dægradvöl en fimm- mínútna-krossgátur og hugareikn- ingsdæmi. Áður en ég sný mér að þessu, ætla ég að fara nokkrum orðum um þátt skákarinnar í fé- lagslífi almennt svo og sér í lagi Háskólastúdenta. Það er alkunna. að skákiðkun hefur færst mjög í aukana hér á landi á síðustu árum. Veldur bar mest um, að íslendingar hafa eign- ast afburða skákmann, sem tví- mælalaust er nú í hópi beztu skák- manna heimsins. Heita má að öll félög, sem hafa innan vébanda sinna hóp æskufólks efni til skák- móta í einhverri mynd á ári hverju með mikilli og almennri bátttöku og starfsemi taflfélaga hefur færst mjög í aukana. Það hefur svnt sig. að skákin er holl og þroskandi tómstundaiðia. lik- lee til bess að hafa góð áhrif og halda mönnum frá ýmsu bví, sem lítt er mannbætandi. Ég tel það vel farið að gengi skákarinnar skuli fara vaxandi í öllu félagslífi og þáttur hennar þar aukast. Félagslíf hér í Háskólanum hef- ur tæplega verið með nokkrum

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.