Læknaneminn - 01.12.1968, Blaðsíða 9
LÆKNANEMINN
9
m.a. komið í ljós við tilraunir, þar
sem progesteron hefur verið gefið
í stórum skömmtum fyrst eftir
coitus á egglostíma og hindrað
frjóvgun fyrir því. Sýnt hefur ver-
ið fram á, hve mismunandi stórir
skammtar af steroidiun eggja-
stokkanna hafa mikið að segja
bæði hvað snertir frjóvgun og
hindrun á frjóvgun. Þannig geta
vissir skammtar af progesteron
undirbúið slímhúð legsins hæfilega
til þess að frjóvgað egg setjist þar
að, en e.t.v. aðeins stærri skammt-
ar af sama efni komið í veg fyrir
það.
Egglosum er stjórnað af gona-
dotrop hormónum heiladingulsins.
F.S.H. (follicel-stimulating-hor-
mon) hefur þau áhrif, að eitt
ákveðið eggbú í öðmm eggja-
stoliknum nær fullum þroska. Til
þess að þetta geti átt sér stað er
þörf lítils magns af L.H. (Luteini-
zing-hormone). Við skyndilega
aukningu á L.H.-framleiðslunni
losnar eggið og hið brostna eggbú
breytist í gulbú.
Gonadotropinin stjóma ekki að-
eins egglosi, heldur einnig myndun
steroid-hormóna eggjastokkanna,
en sú framleiðsla stendur í nánu
sambandi við þroska eggsins. Það
eggbú, sem þroskast hverju sinni,
framleiðir vaxandi magn af östro-
gegn hormónum, sem framkalla
breytingar í slímhimnu legsins
(proliferation) og hefur einnig
áhrif á þekjuna í vagina. Slím-
myndun í cervix uteri verður einn-
ig fyrir áhrifum, það verður nú
þunnt, þannig að sæðisfrumur
eiga auðvelt með að fara í gegn-
um það. Þessum breytingum fylgir
aukinn útskilnaður af „östrogen-
metaboliturn“ í þvagi. Hið aukna
magn af östrogenhormónum verk-
ar síðan aftur á framleiðslu F.S.H.
og L.H. - „releasing factors“ -
frá miðheilanum. Hvernig þetta
eiginlega á sér stað, vita menn
ekki enn. Menn vita að smá-
skammtar af östrogen auka fram-
leiðslu bæði á F.S.H. og L.H., en
áframhaldandi gjöf á stórum
östrogenskömmtum kemur í byrj-
un í veg fyrir F.S.H.-framleiðslu
og síðan einnig L.H.-framleiðsluna.
Eftir egglos breytist hið brostna
eggbú í gulbú, sem framleiðir ekki
aðeins östrogenhormón heldur
einnig mikið magn af progesteron.
Progesteron veldur síðan breyting-
rnn á endometrium (secretion), -
breytingar verða á ný í vagina-
þekjunni og cervixslím verður nú
þykkt, frumuríkt og ógagnsætt svo
að sæðisfrumur komast nú ógjarn-
an í gegnum það. Þessum breyt-
ingum fylgir aukinn pregnandiol-
útskilnaður í þvagi. Progesteron
hefur einnig áhrif á miðheilading-
ulskerfið. Það dregur úr L.H.-
framleiðslu heiladingulsins, en
hefur lítil eða engin áhrif á fram-
leiðslu F.S.H.
Stjórn heiladingulsins á starf-
semi gulbúsins er ekki fyllilega
kunn. Ýmsir telja að L.H. sé þar
ekki eitt að verki, heldur og önn-
ur hormón heiladinguls. Eins og
kunnugt er, endist starfsemi gul-
búsins aðeins 14 daga, ef engin
frjóvgun á sér stað. Þá minnkar
steroidframleiðsla gulbúsins
skyndilega það mikið. að engra
áhrifa gætir þaðan á slímhimnu
legsins, sem brotnar nú niður með
tíðablæðingu.
Hvað veldur þessari skyndilegu
minnkun á starfsemi gulbúsins er
ekki vitað. Ýmsir telja sennilegt
að visst efni, sem myndast í endo-
metrimn (luteo-lysin), sé þarna að
verki. Menn vita, að progesteron
er nauðsynlegt, til þess að egg
geti setzt í legslímhúðina.
Þetta stutta yfirlit yfir samspil