Læknaneminn


Læknaneminn - 01.12.1968, Blaðsíða 34

Læknaneminn - 01.12.1968, Blaðsíða 34
LÆKNANEMINN n Bráð eitrun getur orðið, þeg- ar í loftinu er svo mikið magn af ákveðnum mengum, að eitrun- areinkenni koma í ljós innan skamms tíma. Sem betur fer heyr- ir slíkt einungis til undantekninga, og þá sem afleiðing slysalegrar út- sendingar á miklu magni af viss- um efnum eða af sérstökum veður- fræðilegiun ástæðum. Eitt fyrsta dæmið um slíkan atburð var at- vikið í Meuse-dalnum í Belgíu 1930, þegar meira en 1000 manns sýndu einkenni eitrunar og um 60 létust. Ekki voru gerðar efnamælingar á loftinu, en talið er, að um hafi verið að ræða flúorsambönd eða brennisteinstvíoxíð frá nálægu verksmiðjuhverfi. Mikið „smog“ varð í Donora, lítilli iðnaðarborg skammt frá Pittsburgh, í okt. 1948. Veiktust þá tæplega 6000 af 14.000 íbúum, þar af veiktust 1500 alvarlega og um 20 dóu. Einkenni voru fyrst og fremst frá öndunar- vegi, svo sem hálssærindi, berkju- bólga og lungnabólga. Orsök eitr- unar var einkum tahn brennisteins- tvíoxíð. 1 London hefur oft orðið mikið „smog“, en sjaldan eins al- varlegt og í des. 1952. Talið er, að um 4000 manns hafi þá látizt af völdum þokunnar. Einkum voru það komabörn, gamalt fólk og þeir, sem þjáðust af langvarandi hjarta- eða lungnasjúkdómum. Fyrst og fremst var orsök eitrun- ar brennisteinstvíoxíð og brenni- steinssýra (í Lundúnaþoku í des. 1962 mældist styrkleiki brenni- steinstvíoxíðs 5,7 mg/m3). Síkomin eitrun getur orsak- azt af mengum í andrúmslofti, sem hafa samsöfnunar-áhrif (cu- mulative effect), eða af skaðleg- um efnum, sem stöðugt eru í loft- inu. Er styrkleiki þeirra þá ekki það mikill, að þeir valdi bráðri eitr- un. Hér imdir falla efni eins og flúor, arsen, blý, beryllíum, króm og cadmíum. Ýmsir halda því fram, að langvarandi áverkan brenni- steinsmengunar geti valdið þrá- látri berkjubólgu og síðar bron- chiectasíum, einnig augnangri (conjunctivitis). Myndun illkynja æxla getur orsakazt af útsetningu fyrir æxlismyndandi efnum (carcin- ogenic substances). Tilraimir með ýmis þessara efna virðast leiða í ljós, að æxlismyndandi geta þeirra sé ekki háð því, hversu miklu lík- aminn heldur eftir (eins og er til- fellið með efni, sem hafa dæmi- gerð samsöfnunar-áhrif), heldur heildarsummu af uppteknum skömmtum, jafnvel þótt þeim sé dreift á tíma og án tillits til þess, hvernig niðurbrotnun og útskiln- aði er varið (Druckrey o.fl.). Af- leiðingin er heildarsummun á óaft- urkallanlegum breytingum. Það er því vel mögulegt, að angahtlir skammtar verði skaðlegir, ef þeir eru uppteknir æ ofan í æ. Helztu æxlismyndandi efnin í andrúmslofti nútíma borga eru títtnefnd f jölhringa arómatísk kol- vatnsefni. Þessi efni teljast eigin- lega til sóts. Það er athyglisvert, að sót var einmitt fyrsta efnið, sem grunað var um að valda krabbameini. Það var Sir Percival Pott, sem árið 1775 fann samband mihi sóts og krabbameins í eist- um (,,sótarakrabbi“). Æxlismynd- andi eiginleikar sóts, sem myndazt hafði við ófuhkomna brennslu á steinkolum, voru síðar staðfestir með dýratilraunum. Árið 1949 var eitt kröftugasta fjölhringa kol- vatnsefnið, 3,4-bcnzpýren, ein- angrað úr sóti. Þetta efni finnst mælanlegt í andrúmslofti ótal iðnaðarborga, sbr. töflu 5 (Kotin,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.