Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 20.11.1942, Side 18
inni reyndi af fremsta megni að vinna að því, að
framkvæmd yrðu þau atriði, sem flokksþingið hafði
gert ályktun um og skýrt kom í ljós í frumvarpi
því, sem þingmenn Alþýðuflokksins lögðu fyrir
vetrarþingið 1941. Má því óhikað fullyrða, að Al-
þýðuflokkurinn, bæði fulltrúi hans í ríkisstjórninni,
þingflokkurinn og miðstjórnin sameiginlega, reyndu
allt sem í þeirra valdi stóð til þess að fá fram-
kvæmdar ályktanir Alþýðusambandsþingsins, þótt
þær næðu eigi fram að ganga sökum andstöðu hinna
flokkanna.
Á þessu sama alþingi var tekin til athugunar
skattalöggjöf landsins.
Áður hafði verið skipuð milliþinganefnd til þess
að athuga þau mál og var Jón Blöndal, hagfræðing-
ur, fulltrúi Alþýðuflokksins í nefndinni. í samráði
við miðstjórn og þingflokk Alþýðuflokksins bar
hann fram sérstakar tillögur í þessum málum, í
fullu samræmi við þá stefnu, er flokksþingið mark-
aði í skattamálunum. í ítarlegu nefndaráliti, sem
fulltrúi Alþýðuflokksins í milliþinganefndinni rit-
aði um málið, benti hann á meginröksemdirnar fyrir
tillögum flokksins.
Varðandi tillögur Alþýðuflokksins um nauðsyn á
nýbyggingarsjóðum útgerðarfyrirtækja til endur-
nýjunar skipastólnum, segir svo í nefndaráliti Jóns
Blöndals:
„Það er því þjóðarnauðsyn að tryggja það á ein-
Jivern hátt að til verði fé eftir stríðið til þess að
endurnýja skipaflotann. En hvernig á að tryggja
það? Útgerðin hefir fyrr grætt stórfé og það hefir
16