Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 20.11.1942, Blaðsíða 24
fulltrúum Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokks-
ins í ríkisstjórninni, að þeir voru algeriega andvig-
ir kröfu félaganna, og munu atvinnurekendur í
hlutaðeigandi iðngreinum hafa verið tregari til
samninga en ella vegna vissunnar um það, hvernig
ráðherrar Sjálfstæðis- og Framsóknarmanna tóku
málinu.
Hinn 1. janúar 1942 höfðu samningar ekki tekizt
milli félaganna og atvinnurekenda, og hófust þá
verkföll. Að vísu kom strax í ljós eftir áramótin,
að atvinnurekendur vildu semja, en þá kom upp
úr dúrnum, að Framsóknarflokkurinn vildi lögbanna
það, að nokkrar grunnkaupshækka,nir ættu sér stað,
og Sjálfstæðismenn féllust á það ráð.
Fulltrúi Alþýðuflokksins tók það skýrt fram, þeg-
ar farið var að ræða þessi mál, að hann væri mót-
fallinn kaupbindingu og að alls ekki væri unnt að
gefa út bráðabirgðalög um þetta efni, nema brjóta
í bág við þá viðteknu starfsreglu þjóðstjórnarinnar,
að gefa ekki út bráðabirgðalög, nema allir ráðherr-
arnir væru því samþykkir. M. a. hafði ekki á sín-
um tíma verið horfið að því að gefa út bráðabirgða-
lög um verðlagseftirlit, vegna þess að ráðherrar
1 Sjálfstæðismanna voru því mótfallnir, og voru þeir
þó í minnihluta í því máli innan stjórnarinnar.
En þrátt fyrir það, að rofin væri með þessu starfs-
regla ríkisstjórnarinnar, og þrátt fyrir eindregin
mótmæli Alþýðuflökksins, fulltrúa hans í ríkis-
stjórninni og miðstjórnar flokksins, ákváðu þeir í
sameiningu, Framsóknarmenn og Sjálfstæðismenn,
að gefa út bráðabirgðalög um þetta efni, og voru
22