Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 20.11.1942, Page 25
það hin illræmdu gerðardómslög, er gefin voru út
8. janúar 1942.
En það var ekki nóg að Alþýðuflokkurinn væri
á þenna hátt beittur ofbeldi, heldur fóru ráðherr-
ar Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins
einnig niður í ríkisútvarp og gerðu þar grein fyrir
lögunum af sinni hálfu, en meinuðu ráðherra Al-
þýðuflokksins að taka þar til máls.
Strax og þetta skeði þá var kallaður saman fund-
ur í miðstjórn Alþýðuflokksins, og meðal þing-
manna hans, er til náðist á þann 'hátt, en staðið í
símasambandi vig þá, sem voru utan bæjar.
Þessi fundur var haldinn 9. janúar 1942, eða
daginn eftir útgáfu bráðabirgðalaganna. Var þar
samþykkt með samhljóða atkvæðum miðstjórnar-
manna og þingmann flokksins eftirfarandi tillaga:
„Fulltrúar Framsóknarflokksins og Sjálfstæðis-
flokksins í ríkisstjórninni hafa í gær, þrátt fyrir marg
endurte'kin og ákveðin mótmæli fulltrúa Alþýðu-
flokksins, gefið út bráðabirgðalög þar sem verka-
lýðsfélögin, og launastéttirnar yfirleitt, eru sviptar
samnings- og verkfallsrétti og komið er á þvinguð-
um gerðardómi í kaupgjaldsmálum í þeim yfir-
lýsta tilgangi að koma í veg fyrir allar kaup- og
kjarabætur.
Útgáfa þessara bráðabirgðalaga brýtur og algjör-
lega í bág við þær viðteknu og yfirlýstu starfs-
aðferðir samstjórnarinnar að gefa ekki út bráða-
birgðalög nema allir ráðherrar væru því samþykkir.
Mótmælum fulltrúa Alþýðuflokksins gegn þessum
.aðförum var því ein.u svarað af hálfu samstarfs
23