Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 20.11.1942, Side 27
Alpinsp veturinn 1942.
Lögin um gerðardóminn -mæltust mjög illa fyrir
meðal launastéttanna, en verkalýðsfélögin fylgdu
þó landslögum á -alla lund, og iþau, sem í deilum áttu,
tóku upp vinnu að nýju eftir að lögin voru sett. Hins
vegar kom brátt í ljós, að gerðardómslögin myndu
alls ekki ná tilgangi sínum, því að -atvinnurekendur
sáu sér oft alls ekki annað fært, en að fara í kring
um lögin og greiða launastéttunum alls konar upp-
bætur og láta þær hafa lengri vinnutíma, svo að
þær fengju í raun og veru hækkað kaup.
Þrátt fyrir þetta voru gerðardómslögn samþykkt
á vetrarþinginu 1942. Alþýðuflokkurinn gerði harða
hríð að lögunum á þingi, en þá stóðu Sjálfstæðis-
og Framsóknarmenn saman um lögin, þótt auðséð
væri, að mörgum þingmönnum þessara flokka var
sárnauðugt að samþykkja lögin, — jafnvel skárust
sumir alveg úr leik. Sést þetta bezt á því, að lögin-
voru að lokum afgreidd frá efri deild með atkvæð-
um minnihluta þingdeildarmanna. Og eins og alkunn-
ugt er, voru lögin síðan afnumin á sumarþinginu
1942.
En þegar nokkuð var liðið á aðalþingið 1942, kom
nýtt málefni til skjalanna, sem hafði í för með sér á-
kveðinn ágreining -milli IVamsóknarflokksins og
Sjálfstæðisflokksins. En það var breytingin á kjör-
dæmaskipun landsins.
Á öndverðu aðalþinginu 1942 tók miðstjórn og
25