Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 20.11.1942, Side 30
tímabundins og takmarkaðs hlutleysis Alþýðuflokks-
ins og Kommúnistaflokksins.
Stj órnarskrárbreytingin var síðan samþykkt £
fvrra sinn vorið 1942, og alþingi síðan rofið og efnt
til nýrra'kosninga hinn 5. júlí 1942.
Kosningar ákjörfísnatsilimn.
Samkvæmt gildandi landslögum áttu bæjarstjórn-
arkosningar og kosningar til hreppsnefnda í kaup-
túnum að fara fram í janúarmánuði 1942. En vegna.
vinnudeilna, er prentarar áttu í um það leyti, koma
engin blöð út nema Alþýðublaðið eitt, er hafði sér-
staka samninga um það atriði við prentarafélagið.
Fyrir þessar sakir báru fulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins í þáverandi ríkisstjórn Hermanns Jónassonar
fram kröfur um það, að bæjarstjórnarkosningunum
yrði frestað. Stóðu um þetta miklar deilur innani
ríkisstjórnarinnar, og hefir þeim verið lýst nokkuð,
einkum' í blöðum Framsóknarmanna og af fulltrúum'
þess flokks, þótt ekki verði með vissu sagt hvað'
fram hefir farið í ríkisstjórninni um þetta atriði.
En eitt er þó víst, að gefin voru út bráðabirgðalög
um frestun bæjarstjórnarkosninga í Reykjavík, en
kosningar í öðrum kaupstöðum og kauptúnum fóru
fram á tilsettum tíma. — Bæjarstjórnarkosningar f
Revkjavík fóru síðar fram, nokkru eftir að prent-
araverkfallinu var lokið. Úrslit bæjarstjórnarkosn-
inganna voru viðunandi fyrir Alþýðuflökkinn. Hann
hélt meirihlutaaðstöðu sinni þar sem hann hafði
áður haft meirihlutavald. bæði á ísafirði og í Hafn-
28