Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 20.11.1942, Síða 58
svo fljótt sem kostur er á, frambjóðendur í kjördæm-
um og verði stefnt að því að fá írambjóðendur í öll
kjördæmi landsins.
III. Trúnaðarmönnum flokksins séu skrifuð bréf
um stefnu og viðgang flokksins á hverjum tíma, svo
og um stjórnmálaviðhorf almennt. Þeim séu send
blöð og ritlingar, er flokkurinn gefur út.
IV. Flokksstjórnin beiti sér fyrir því í samráði við'
frambjóðendur og trúnaðarmenn flokksins á hverj-
um stað, að leitast verði við að finna áróðursmenn
fyrir flokkinn á sem flestum vinnustöðvum í landinu.
V. Flokksstjórnin beiti sér fyrir öflugri herferð
til útbreiðslu blaða og ritlinga, er snerta stefnu og.
viðgang flokksins.
VI. Flokksstjórnin vinni að eflingu æskulýðshreyf-
ingar flokksins og styðji hana eftir mætti með því'
að vinna að stofnun æskulýðsfélaga í hverjum bæ og
kaupstað. Enn fremur vinni flokksstjórnin að því að'
starfrækt verði stjórnmálanámskeið í sambandi við'
þá fræðslustarfsemi, sem æskulýðsfélögin beita sér
fyrir.
VII. Kosin verði 5 manna nefnd, er starfi að út-
breiðslu flokksins milli þinga í samráði við flokks-
stjórnina og væntanlegan starfsmann flokksins.
Tillögur frá blaðanefnd.
1. Flokksþingið lýsir ánægju sinni yfir stækkun Al-
þýðublaðsins og þeim árangri, sem náðzt hefir
með henni fyrir fjárhag og útbreiðslu blaðsins.
Jafnframt telur þingið, að stefna beri að því, að-
stækka blaðið enn meira svo unnt sé að breyta