Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 24.10.1981, Side 40
(3) Fjölskyldumálahópur.
(4) Byggðahópur.
Hóparnir mega skipta sér í undirnefndir.
Ræðutími er takmarkaður við 6 mínútur, tvisvar um
hvert mál. Framsögumenn starfshópa hafa 12 mínútna
framsögutíma, annars 6 mínútur.
Sjálfstæðar tillögur skulu fram lagðar eigi síðar en í
fundarlok á laugardag. Breytingatillögur við ályktanadrög
starfshópa má flytja undir umræðum um þau.
Ályktun um byggðamál.
Vinnuhópurinn hefur fjaillað um frumvarpsdrög að
byggðastefnu fyrir Alþýðuflokkinn, sem lögð voru fyrir
aukaþingið. Nefndin telur eðlilegt, að þessi drög verði
send félögum flokksins um allt land til athugunar, en að
öðru leyti verði málinu vísað til þingflokks og fram-
kvæmdastjórnar, er hafi forgöngu um úrvinnslu og frá-
gang.
Vinnuhópurinn leggur fyrir þingið eftirfarandi ályktun
um byggðamál: Aukaflokksþing Alþýðuflokksins telur, að
mjög sé orðið tímabært að endurskoða þá byggðastefnu,
sem starfað hefur verið eftir hér á landi. Byggðastefna
verður ekki grundvölluð á „kommisarakerfi“ og fyrir-
greiðslupólitík. Til að ná árangri með skynsamlegri
byggðastefnu er nauðsynlegt að gera byggðaáætlanir fyrir
hvern landshluta, er verði í tengslum við þjóðhagsáætlun
og aðra stefnumörkun um rekstur þjóðarbúsins. Slíkar
byggðaáætlanir verður að gera í samráði við heimamenn
og samtök þeirra. Byggðaáætlanir eiga ekki síður að ná
til þéttbýlissvæða en dreifbýlissvæða. — Skynsamleg
38