Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 24.10.1981, Side 42
Með láglaunafólkinu
móti íhaldsöflunum
Aðdragandinn að myndun núverandi ríkisstjórnar var
með einstæðum hætti. Tilraunir Alþýðuflokksins til að
mynda sterka meirihlutastjórn, er náð gæði góðu sam-
starfi við aðila vinnumarkaðarins um. lausn efnahagsvand-
ans, báru ekki árangur, þar eð hvorki Framsóknarflokkur
né Alþýðubandalag höfðu áhuga á slíkri stjórnarmyndun
eftir að leyniviðræðurnar hófust við Gunnar Thoroddsen.
Núverandi ríkisstjórn var því hvorki af hálfu Alþýðu-
bandalags né Framsóknarflokks hugsuð sem alvöru ríkis-
stjórn, heldur pólitískt hrekkjarbragð. Þetta herbragð
Framsóknarflokksins, og hinna nýju forystumanna Alþýðu-
bandalagsins, sem flestir eru raunar upprunnir í Fram-
sóknarflokknum, ætlar að reynast þjóðinni dýrt spaug.
Einn þáttur þess var sá, að hin nýja forystusveit Alþýðu-
bandalagsins skipaði flokksbræðrum sínum í verkalýðs-
hreyfingunni að rjúfa þegar í stað allt samstarf við
Alþýðuflokksmenn á þeim vettvangi, — samstarf sem
hafði verið með ágætum, enda þótt leiðir lægju ekki ávallt
saman í stjórnmálaheiminum. í stað samvinnunnar við
Alþýðuflokkinn áttu Alþýðubandalagsmenn í verkalýðs-
hreyfingunni að leiða íhaldið til öndvegis. Það hefur nú
verið gert. Sjálfstæðismaður er nú varaforseti Alþýðusam-
40