Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 24.10.1981, Blaðsíða 54
lengur við það unað að Alþingi taki ekki af skarið, þannig
að því máli verði hrundið í framkvæmd.
Foreldrafræðsla og fjölskylduráðgjöf.
Ein af þeim breytingum sem orðið hafa á síðari árum
í íslensku þjóðfélagi er að foreldrar eru yngri en áður,
stofna fyrr til fjölskyldu. Allar þessar breytingar kalla á
meiri ábyrgð hjá ungu fólki, meiri þekkingu og skilning,
meiri tillitssemi, en nokkru sinni fyrr, ef ekki á illa að
fara.
Þjóðfélagið verður að taka tillit til þessara staðreynda
vegna aukinnar tíðni hjónaskilnaða (hjúskaparslita) á síð-
ustu árum.
Þess vegna leggur flokkurinn áherslu á:
- að strax í grunnskólanum fái nemendur haldgóða
fræðslu um kynlíf og getnaðarvarnir.
- að í efstu bekkjum grunnskólans sé lögð áhersla á
að kynna þá ábyrgð sem fylgir því að eignast börn
og stofna heimili.
- þeirri fræðslu sé haldið áfram fyrir unglinga og
ungt fólk með námskeiðum, fræðslu í námsflokkum
eða kvöldskólum og með skipulagðri og markvissri
fræðslu í útvarpi og sjónvarpi.
- að í hverju sveitarfélagi sé ávallt fyrir hendi að-
gengileg og ódýr foreldrafræðsla fyrir fólk með börn
og verðandi foreldrum sérstaklega boðið upp á slíka
fræðslu og þeir hvattir til að notfæra sér hana.
Dagvistarmál.
Litlar fjölskyldur hafa nú komið í vaxandi mæli í stað
stórra fjölskyldna. Þess vegna er það ákaflega vafasamt
52