Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 01.06.2023, Síða 2

Fréttir - Eyjafréttir - 01.06.2023, Síða 2
Útgefandi: Eyjasýn ehf. - kt. 480278-0549 Ægissgötu 2 - 900 Vestmannaeyjum. Ritstjórn og ábyrgð: Ómar Garðarsson og Sindri Ólafsson - omar@eyjafrettir.is - sindri@eyjafrettir.is. Umbrot: Leturstofa Vestmannaeyjum ehf. Ljósmyndir: Blaðamenn Eyjafrétta. Prentun: Stafræna Prentsmiðjan ehf. Sími: 481 1300 Netfang: frettir@eyjafrettir.is. Auglýsingar: auglysingar@eyjafrettir.is Veffang: www.eyjafrettir.is EYJAFRÉTTIR er áskriftarblað. Eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið. Um 200 nemendur voru skráð- ir í Framhaldsskólann á vor- önn á 11 mismunandi brautum og um 80 áfangar voru í boði. Áhersla á fjölgun nema hefur skilað sér, voru iðnnemar tæplega helmingur nemenda. Miðað við núverandi umsókn- ir þá verður skiptingin með svipuðum hætti í haust. Þetta kom fram í yfirliti yfir starfið á önninni sem Gunnar Friðfinns- son, kennari flutti. „Okkar markmið er ávallt að vera einn af bestu skólum landsins og að okkar mati erum við það á ýmsum sviðum. Fyrrum nem- endum skólans er í sínu fram- haldsnámi hrósað fyrir vönduð vinnubrögð, samskiptahæfni og breiða kunnáttu. Af því erum við mjög stolt,“ sagði Gunnar. „Við gerum okkur grein fyrir því að skóli er ekki húsnæði. Skóli er sú vinna og samstarf sem fram fer hjá nemendum og kennurum. Af- raksturinn er sú verðmætaaukning sem myndast hefur hjá nemendum á námstímanum. FÍV er lærdóms- samfélag í stöðugri þróun og við erum ávallt að leita nýrra leiða til þess geta undirbúið nemendur okkar sem best til framtíðar, bæði í námi og starfi. Jafnvel í lífinu sjálfu.“ Nemendur á ferð og flugi Gunnar kom inn á ýmsa þætti í starfinu eins og áframhaldandi samstarf var á milli skólans og ÍBV með akademíu í knattspyrnu og handknattleik með þátttöku 20 nemenda. Skólinn er þátttakandi í Erasmus verkefninu og fóru fjórir nemendur til Finnlands. Verkefnið fjallaði um hæfnikröfur 21. aldar- innar og var í þessari ferð lögð sérstök áhersla á nýsköpun. Í apríl fóru aðrir fjórir nemendur í Erasmus verkefni til Zevenaar í Hollandi. „Viðfangsefnið var andleg og líkamleg heilsa og má segja að þessi ferð hafi tekist frábærlega í alla staði, enda eru Hollendingar höfðingjar heim að sækja. Nemendur voru til fyrir- myndar og kennararnir líka. Þetta var lokakaflinn í þessu þriggja ára verkefni og hefur tekist einkar vel til. Nemendur hafa aflað sér nýrr- ar þekkingar, öðlast meiri víðsýni, eignast nýja vini og í mörgum tilfellum hafa þeir gert sér betur grein fyrir því hversu gott við höfum það hér á Íslandi.“ Í maí fóru 13 nemendur til Krakow í Póllandi og var ferðin var hluti af námsmati í söguáfanga við skólann. Frumkvæðið kom frá nemendum sem söfnuðu þau fyrir ferðinni sjálf. „Þau heimsóttu meðal annars útrýmingarbúðir og nemendur skipulögðu sjálf skoðanaferðir um svæðið og voru þar persónulega í hlutverki leið- sögumanna. Frábært framtak í alla staði,“ sagði Gunnar. UNESCO og árshátíð FÍV er UNESCO skóli. Þann 23. janúar var haldinn UNESCO dag- ur í skólanum og í vor heimsóttin Guðni Th. Jóhannesson, forseti í heimsókna ávarpaði nemendur og starfsfólk. „Þann 16. febrúar hlotnaðist skólanum sá heiður að vera valin stofnun ársins. Að mínu mati endurspeglar þessi viður- kenning vel þann anda í kringum allt það góða og öfluga fólk sem starfar við skólann. Persónulega er ég gríðarlega stoltur af því að vera hluti af þessari heild,“ sagði Gunnar. Árshátíð FÍV var haldin 16. mars og var hún stórglæsileg. Á Íslandsmóti iðn- og verkgreina í Laugardalshöll keppti Tinna Mjöll Guðmundsdóttir í málm- suðu ásamt öðrum framúrskarandi nemendum á því sviði. Árangur Tinnu Mjallar í keppninni var mjög góður og á hún framtíðina fyrir sér á þessum vettvangi. Nemendur í nýsköpunaráfanga tóku þátt í keppninni Ungir frumkvöðlar. Gunnar nefndi þrjá nemendur sem geta státað af 100 prósent mætingu. Þeir eru Bogi Matt Harðarson, Hrafnhildur Ýr Steinsdóttir og Ingunn Anna Jónsdóttir. Gunnar ávarpaði næst út- skriftarnema og sagði þau hafa lært seiglu, samstöðu, umburðar- lyndi og sjálfstæði meðfram námi. Og þau geti litið stolt til baka. „Nú er komið að leiðarlokum. Þið hafið staðist kröfurnar og við tekur nýr tími í ykkar lífi. Í dag lýk ég tuttugasta ári mínu sem kennari við skólann. Hvort sem þið trúið því eða ekki, þá hef ég hlakkað til þess á hverjum morgni að hitta nemendur eins og ykkur og fylgjast með ykkur þroskast, eflast og vinna að því að verða fullorðin. Mig langar að þakka ykkur innilega fyrir þessar sam- verustundir.“ Nánar á bls. 32 og 33,, Yfirlit vorannar 2023 200 nemendur 11 brautir: FÍV er lærdómssamfélag í stöðugri þróun 21 nemandi af 22 sem útskrifuðust á laugardaginn frá Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.