Fréttir - Eyjafréttir - 01.06.2023, Blaðsíða 26
26 | | 1. júní 2023
ein tvö ár eftir þennan atburð gekk
mér illa að sofa til sjós. Ekki af
hræðslu, heldur virtist líkami og
sál bregðast ósjálfrátt við skips-
halla ef hann var óvenjumikill eða
snöggur.“
Mikil gæfa yfir Halkion VE
Áhöfnin á Halkion VE bjargaði
átta mönnum af Erlingi IV. VE
45 þegar báturinn sökk 22. mars
1963 um 30 sjómílur vestan við
Vestmannaeyjar. Skipstjóri var
Ásberg Lárenzíusson. Tveir úr
áhöfninni, þeir Guðni Friðriksson
1. vélstjóri og Samúel Ingvason
háseti fórust, en átta komust
um borð í gúmmíbjörgunarbát.
Halkion kom þar að skömmu síð-
ar og bjargaði mönnunum. Stefán
Stefánsson skipstjóri á Halkion
sagði í viðtali við Morgunblaðið
að hafi ekki talið vera sjóveður
og ekki ætlað á sjó en fór af stað
klukkutíma síðar en hann hefði
annars gert. Þegar þeir voru
komnir töluvert vestur fyrir Eyjar
sá maðurinn við stýrið rautt ljós
blikka og töldu þeir fyrst að það
væri ljós á netabauju. Það reyndist
vera ljós frá neyðarblysi. Eftir
skamma stund sáu þeir gúmmí-
bátinn.
Erfiðlega gekk að ná mönnunum
úr gúmmíbátnum því þeir voru
allir mjög kaldir og blautir. Einn
var orðinn meðvitundarlaus og
líflítill.
Rifjað var upp af þessu tilefni að
í október 1961 fann Halkion VE
bátinn Blátind þar sem hann var
með bilaða vél út af Færeyjum
og dró hann til hafnar. Alls hafði
þá áhöfnin á Halkion VE, undir
stjórn Stefáns Stefánssonar skip-
stjóra, bjargað 24 sjómönnum úr
sjávarháska.
1973
Fimmtíu ár voru liðin 22. febrúar
síðastliðinn frá því að Gjafar VE
300 strandaði í Grindavík 1973.
Það var um mánuði eftir að bátur-
inn flutti yfir 400 manns, að talið
er, frá Vestmannaeyjum til Þor-
lákshafnar þegar Heimaeyjargosið
braust út 23. janúar sama ár.
Gjafar VE var á útleið frá
Grindavík eftir að hafa landað
loðnu og strandaði á skeri við
Hópsnesið um klukkan þrjú um
nóttina. Það gekk á með útsynn-
ingshryðjum. Slysavarnadeildin
Þorbjörn í Grindavík bjargaði
áhöfninni á land í björgunarstóli
við erfiðar aðstæður. Gekk sjór
bæði yfir skipið og björgunar-
mennina á leið þeirra á strand-
staðinn, að sögn Morgunblaðsins.
Allir skipbrotsmennirnir urðu
bæði blautir og kaldir við björg-
unina. Þeir hresstust fljótt þegar
þeir komust í þurr og hlý föt og
komust í hús. Miklar skemmdir
urðu á bátnum og var honum ekki
bjargað.
Í áhöfn Gjafars voru Örn
Erlingsson skipstjóri, Haraldur
Benediktsson 1. stýrimaður,
Hilmar Rósmundsson 2. stýrimað-
ur (var í landi), Guðjón Rögn-
valdsson 1. vélstjóri, Theódór
Ólafsson 2. vélstjóri og hásetarnir
Snorri I. Ólafsson, Jón Ásgeirs-
son, Ingi Steinn Ólafsson, Samúel
Friðriksson, Már Guðmundsson,
Jónas Hermannsson og Ævar
Karlesson. Stórt viðtal var við þá
Guðjón Rögnvaldsson og Theódór
Ólafsson í Eyjafréttum 20. febrúar
2013 þegar 40 ár voru liðin frá
strandinu. Þar lýstu þeir baráttu
áhafnarinnar upp á líf og dauða í
brimgarðinum við Grindavík.
Elías Steinsson VE 167 strandaði
á Langarifi austan við Stokkseyri
28. mars 1973. Báturinn var á leið
til Þorlákshafnar með 25 tonn af
þorski af Eyjamiðum. Bjarnhéð-
inn Elíasson skipstjóri ákvað að
leggja sig eftir tveggja sólarhringa
vöku og sagði í samtali við
Morgunblaðið að illt hafi verið
að vakna við strandið. Björgunar-
sveitir Slysavarnafélags Íslands
á Stokkseyri og Eyrarbakka
komust að bátnum á slöngubátum
og björguðu skipverjunum níu.
Nokkur ylgja var við strand-
staðinn og höfðu tveir gúmmí-
björgunarbátar bátsins rifnað við
síðuna. Í níu manna áhöfn bátsins
voru Bjarnhéðinn Elíasson skip-
stjóri og útgerðarmaður, Kristján
B. Laxfoss stýrimaður, Erlingur
Pétursson vélstjóri, Sæmund-
ur Guðmundsson 2. vélstjóri,
Elías Guðmundsson kokkur og
hásetarnir Steinar Gunnarsson,
Salvar Júlíusson, Guðmundur
Magnússon og Örn Guðmunds-
son.
Frigg VE 316 fékk á sig brotsjó
suður af Grindavík þann 29. mars
1973. Mikill leki kom að bátnum,
vélin drap á sér og rak bátinn
stjórnlaust í átt að landi. Sigurður
Gísli VE 127 kom að bátnum.
Áhöfnin á Frigg, fimm manns,
fór í gúmmíbjörgunarbát sem
var dreginn yfir í Sigurð Gísla
sem bjargaði áhöfninni. Frigg
rak síðan upp í Krýsuvíkurberg í
sunnan roki og stórsjó og brotnaði
þar. Skipstjóri á Frigg VE var
Sveinbjörn Hjartarson og Friðrik
Ásmundsson var skipstjóri á
Sigurði Gísla VE.
Að sögn Tímans var Frigg VE
17. báturinn sem fórst hér við land
á þremur mánuðum frá ársbyrjun
1973 og þriðji Vestmannaeyjabát-
urinn sem fórst á þeim tíma. Gjafar VE. Ljósmynd: Sigurgeir Jónsson
Guðrún VE 163.