Fréttir - Eyjafréttir - 01.06.2023, Blaðsíða 21
1. júní 2023 | | 21
Einar Ólafsson frá Heiðar-
bæ, vélstjóri, skipstjóri og
útgerðarmaður fæddist 23.
desember 1933 á Víðivöllum
og lést 30. nóvember 2014.
Foreldrar hans voru Ólafur
Ingileifsson skipstjóri, f. 9.
júní 1891 á Ketilsstöðum í
Mýrdal, d. 14. febrúar 1968,
og þriðja kona hans Guðfinna
Jónsdóttir húsfreyja, f. 6. apríl
1902 í Ólafshúsum, d. 24.
febrúar 1994.
Einar lauk vélstjórnarnámi í
Eyjum 1954 og stýrimannaprófi
í Stýrimannaskólanum í Eyjum
1959. Á unglingsárum vann
hann við bústörf í Dalabúinu og
stundaði sjómennsku frá 18 ára
aldri. Hann reri með bróður sín-
um, Sigga Vídó, á ýmsum bátum.
Hann hóf útgerð ásamt Sigurjóni
Karli hálfbróður sínum árið 1956
en þeir gerðu út Skúla fógeta VE
185 til ársins 1960.
Þau Einar og Viktoría Ágústa
Ágústsdóttir giftu sig 1960 og
eignuðust fjögur börn. Þau voru
í aldursröð Ólafur Ágúst, Agnes,
Viðar og Hjalti. Þau byggðu
við Suðurveg 25 og bjuggu þar
til goss 1973. Að gosi loknu
bjuggu þau í Hrauntúni, en síðan
á Smáragötu 9. Ágústa lést árið
2020.
Einar var vélstjóri á Ófeigi II
VE-324 með Ólafi Sigurðssyni frá
Skuld 1961til 1965. Tók hann þá
við skipstjórn Ófeigs á sumar-
síldveiðum og var með hann til
1971. Gunnlaugur Ólafsson, síðar
á Gandí, tók þá við Ófeigi II.
Örlagastrand
Atburðarrásin sem leiddi til þess
að Einar tók við sem skipstjóri
er gerð ítarleg skil
í bók Ásmundar
Friðrikssonar
alþingismanns,
Strand í gini
gígsins, þar sem
Ásmundur fjallar
meðal annars um
söguna af því
þegar skipverjar
á Ágústu VE 350
börðust fyrir lífi
sínu á gígbarmi Syrtlings þar sem
báturinn vó salt meðan gosið stóð
sem hæst.
Ófeigur II dró bátinn af strand-
stað áður en Lóðsinn kom til
aðstoðar. Atburðir næturinnar
eru áhugaverð lesning eins og
bókin í heild sinni. Þessir atburðir
höfðu mikil áhrif á Einar því ekki
einungis tók hann þátt í því þessa
nótt að bjarga Guðna bróður sín-
um sem var stýrimaður á Ágústu
VE heldur hafði atburðarrásin
mikil áhrif á framtíð Einars sem
Ásmundur lýsir á eftirfarandi hátt.
„Óli í Skuld stóð á bryggjunni
og kallaði í Einar Ólafsson frá
Víðivöllum, 2. vélstjóra á Ófeigi
II. Einar hafði nýlega lokið
skipstjórnarprófi og var afar
efnilegur sjómaður. Hann hafði
notið handleiðslu Óla í Skuld sem
var á við háskólanám til sjós. Óli
í Skuld las Einari þau gildi sem
hann hafði tileinkað sér sem sjó-
maður og skipstjóri. Varaði hann
við hættum og hvatti til varkárni
og umfram allt að fara vel með
karlana, veiðarfærin og bátinn.
Þá væri framtíðin björt.
Einar náði því ekki alveg hvert
skipstjórinn hans var að fara.
Þá tók Óli upp lykil úr vasanum
á úlpunni sem hann var alltaf í
þegar hann fór frá borði: „Ein-
ar minn, þetta er lykillinn að
stjórnborðshurðinni á stýrishúsinu
á Ófeigi II og nú ert þú skipstjóri
á bátnum mínum. Vegni þér vel.“
Eftir þessa atburði fór Ólafur
aldrei aftur til
sjós. Ásmund-
ur sagði í
samtali við
blaðamann að
þetta hafi þótt
sérstök ráð-
stöfun að gera
reynslulítinn
2. vélstjóra
að skipstjóra
með þessum
hætti. En Ólafur sem þekktur var
fyrir innsæi sitt til sjós sá eitthvað
í Einari sem varð til þess að hann
tók við skipinu.
Farsælt samstarf
Árið 1971 fóru þau Einar og
Ágústa kona hans aftur í útgerð
ásamt Ágústi Guðmundssyni og
Ásu Sigurjónsdóttur. Stofnuðu
þau félagið Bessa sf. og keyptu
Kap II VE 4. Árið 1976 keyptu
Karakter og mannvinur
SINDRI ÓLAFSSON
sindri@eyjafrett ir. is
” Einar minn, þetta er lykillinn að
stjórnborðshurðinni á stýrishúsinu
á Ófeigi II og nú ert þú skipstjóri á
bátnum mínum. Vegni þér vel.
Einar um borð í Ófeigi II