Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 01.06.2023, Blaðsíða 22

Fréttir - Eyjafréttir - 01.06.2023, Blaðsíða 22
22 | | 1. júní 2023 þeir síðan stærra skip með sama nafni og gerðu það út þar til þeir seldu skipið árið 1987 og hættu útgerð. Ráku þau síðan fyrir- tækið Bessa og stunduðu meðal annars fasteignaviðskipti í nafni félagsins. Samstarf þeirra var alla tíð gott og farsælt og ríkti traust og góð vinátta þeirra á milli allt til hinsta dags. Öryggi sjómanna í öndvegi Öryggismál sjómanna voru þeim Einari og Ágústi alla tíð hugleik- in og kom Bessi að hönnun og uppsetningu á öryggisloka fyrir spilbúnað árið 1972. Sigmund Jóhannsson hannaði öryggisloka á línu- og netaspil að beiðni Einars og Ágústs útgerðarmannanna á Kap VE 4. Þeir höfðu þá orðið fyrir því að maður fór í netaspilið og slasaðist. Öryggislokinn var smíðaður í Vélsmiðjunni Þór og var hann settur um borð í Kap. Öryggið virkar þannig að ef mað- ur festist í spilinu er ekki hjá því komist að snerta arm sem stöðvar spilið samstundis. Rannsóknarnefnd sjóslysa sá fljótlega það öryggi sem lokinn skapaði og var hann kynntur í skýrslu nefndarinnar sama ár. Nefndir, sjómenn og sjómanna- samtök reyndu síðan að beita sér fyrir því að þessi loki yrði lög- leiddur og en sú barátta tók átta ár. Það var ekki fyrr en 1980 sem settar voru reglur um öryggisbún- að við línu og netaspil. En þar var átt við ný fiskiskip og ef spil var endurnýjað. Farsælt samstarf með Sigmund Þeir unnu einnig að því með Sigmund að koma upp fyrsta sleppibúnaði fyrir björgunarbáta sem var bylting í öryggismál- um og bjargað hefur mörgum sjómanninum úr háska. Fyrsti Sigmundsgálginn var settur upp á Kap II. VE 4. Uppsetningu og allan kostnað af honum greiddu útgerðarmennirnir. Gálginn er þannig gerður að þegar togað er í handfang inni í brú eða annars staðar þar sem því er komið fyrir, blæs upp belgur, sem fellir gálgann, gúmmíbátur- inn fellur i sjóinn og blæs strax upp. Kap VE og búnaðurinn var hluti af sýningu á ýmsum uppfinn- ingum Sigmunds Jóhannssonar sem fór fram í Vestmannaeyjum 20. maí 1981. Að sýningu þessari stóðu sjó- slysanefnd og nokkrir áhugasamir Vestmannaeyingar um öryggismál sjómanna. Eyjamenn fjölmenntu á Básaskersbryggju til að fylgjast með sýningunni en talið er að um 600 manns hafi mætt. Sigmund sagði í samtali við blaðamann af því tilefni að allur þessi útbúnaður væri hannaður af honum án þess að hann tæki greiðslu fyrir, var það að hans sögn gjöf til íslenskra sjómanna. Talaði fyrir ábyrgri stjórnun veiða Einar lét sig varða fiskverndun og skynsamlega stýringu veiða. Hann áttaði sig snemma á því hvert stefndi en hann ræddi málið meðal annars í viðtali við Morgunblaðið í júlí 1977. „Það hefur orðið mikil breyting á sjó- sókn hjá mér í gegnum árin. Með stækkandi bátum hefur orðið að sækja á fjarlægari mið. Sjósóknin er almennt svipuð en minni afli. Það er alltaf erfiðara að fiska lítið en mikið, erfiðara andlega og meiri úthaldstími á aflann. Nú er farið að stunda kantana miklu meira á netunum en áður var gert, allt niður á 200 til 300 faðma. Fyrir 10 árum vorum við lítið úti á þessum köntum, það var ekki litið á þá og varla farið á dýpra en 100 faðma. Þótt maður hafi ávallt stundað veiðiskap við Suður- land þá hefur það einnig breyst á undanförnum árum að maður er meira að heiman, útivistin á sjónum er talsvert lengri.“ Stjórnlaust og ekki nokkur hæfa Þegar Einar var spurður að því hvort hann telji að fiskimið fyrir sunnan land hafi verið ofsótt þá sagði hann svo vera. „Ég vil meina að það sé ofsótt á Suður- landsmiðin. Þangað koma bátar alls staðar af á landinu og ef ein- hvers staðar fréttist af fiski er öll gomman komin á staðinn. Báta- floti landsmanna sækir þannig sérstaklega á Suðurlandsmið. Í sumum landshlutum hefur reyndin orðið sú að viðkomandi menn á næstu stöðum við miðin fá að njóta veiðiréttarins og má í því sambandi nefna rækju- og skelfiskveiðar. Það væri ef til vill best að hver fengi að sitja að sínu á afmörkuðu veiðisvæði, en hræddur er ég um að það yrði erfitt við að eiga í framkvæmd og reynd. Skynsamlegra er að mínu mati að taka upp ákveðnari stjórnun. Það liggur fyrir að um ofveiði er að ræða en samt er t.d. alltaf verið að veita fleiri skut- togaraleyfi. Þetta er algjörlega stjórnlaust og ekki nokkur hæfa í þessu á meðan svona er ástatt á fiskimiðum okkar. Á undanförn- um árum hefur það stöðugt orðið erfiðara og erfiðara fyrir frystihús að halda uppi stöðugri vinnu nema þar sem skuttogararnir eru með í dæminu, því það liggur ljóst fyrir að þar hafa skuttogararnir leyst ákveðinn vanda sem minni bátarnir ráða ekki við. Það getur hins vegar engan veginn verið skynsamlegt til lengdar að leyfa ofveiði, hvorki hjá skuttogurum eða öðrum veiðiskipum.“ Verðum sjálfir að taka ábyrgð Einar var á þessum tíma ekki í nokkrum vafa hvar lausnina væri að finna. „Við verum sjálfir að taka á okkur töluverða ábyrgð að eyða ekki sjálfir þessum fiski sem lifir við landið. Við getum ekki lengur afsakað okkur með veiðum útlendinga og verðum sjálfir að sýna fram á að við séum menn til þess að stjórna þessu. Allt snýst þetta því um skynsam- legri stjórnun og nýtingu veiðiflot- ans og þar verður að halda fast og ákveðið um stjórnvölinn jafnframt því að leggja kapp á að nýta aflann til fulls, til manneldis. Sjómenn verða þó fyrst og fremst sjálfir að finna til ábyrgðar í þess- um efnum, því allt annað er mjög erfitt. Það verður einnig að vera samræmi í stjórnunaraðgerðum. Fáránlegt er að bítast á báða bóga um það að úr því að hrygningar- fiskurinn sé drepinn þá sé allt i lagi að drepa smáfiskinn og svo framvegis. Það á t.d. ekki fremur að banna smáfiskadrápið en leyfa allsherjardráp á hrygningarfiski.“ Einar talaði einnig fyrir því að vísindin yrðu höfð meira til marks í framtíðarákvörðunum en þá var. „Þáttur fiskifræðinganna í þessu hlýtur að eiga eftir að aukast mikið og sú starfsemi verður að vaxa. Ég er t.d. viss um það að ef fiskifræðingar gætu fylgst meira með spærlingnum væri ávallt hægt að hafa opin veiðisvæði án þess að eiga á hættu að drepa smáfisk, humar, síld eða annan nytjafisk sem þarf að hlífa, en þessu þarf að stjórna eins og öðru i fiskveiðum.“ Geta ráðið úrslitum um sjálfstæði Íslands „Það er miklu meira farið að hugsa um það en áður að fiskurinn er langmikilvægasta fjárfesting Íslands sem skilar arði og ef til vill fer fólk almennt að sjá að skynsamleg vinnubrögð í þessum efnum geta ráðið úrslitum um sjálfstæði Íslands í framtíðinni. Menn eiga að hefja sig upp fyrir það að vera að bítast um stað- reyndir í þessum efnum. Allir sem drepa fisk leggja hönd á plóginn við eyðingu á fiskinum. En veiðimennska er eðlileg, sjálfsögð og bráðnauðsynleg svo fremi að ekki sé gengið of langt. Ákveðin stjórn í þessum mál- um af ábyrgum mönnum er það sem beinast liggur við og ábyrg Ágústa Ágústsdóttir, Einar Ólafsson, Ása Sigurjónsdóttir og Ágúst Guðmunds- son, eigendur að Kap II. Myndin er tekin 11. apríl 1987. Ljósmynd: Sigurgeir Jónsson Sigmund Jóhannsson og Einar Ólafsson Tekin í brúnni á Kap II VE. Ljósmynd: Sigurgeir Jónsson

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.