Fréttir - Eyjafréttir - 01.06.2023, Blaðsíða 10
10 | | 1. júní 2023
Karítas Þórarinsdóttir, stýri-
maður á Herjólfi fæddist árið
1986 í Vestmannaeyjum.
Foreldrar hennar eru Hafdís
Sigurðardóttir og Þórarinn
Þórhallsson. Í dag býr hún í
Vestmannaeyjum ásamt sam-
býliskonu sinni, Önnu Kristínu
og syni þeirra Hafþóri Frank.
Karítas segir að hún hafi fengið að
alast upp í faðmi fjölskyldunnar
og Eyjanna. Hún eyddi næstum
öllum sínum tíma sem barn og
unglingur í handbolta, fótbolta
og uppi á fjöllum. Eftir útskrift úr
FÍV fór hún í íþróttakennaranám
á Laugarvatni og flutti síðan í
Kópavog árið 2012. Þar kynntist
hún Önnu Kristínu árið 2014 og
náði að sannfæra hana um að
flytja með sér til Eyja í fyrra með
son þeirra Hafþór Frank.
Á unglingsárunum vann hún
mikið í fiski hjá Guðmundu og
Viðari Ella í Fiskvinnslu VE og
segir hún það hafa verið frábær-
an tíma. Ásamt því þjálfaði hún
yngri flokka ÍBV í fótbolta. Þess
á milli var hún í hinum og þessum
störfum. Eftir útskrift í Kennó
hafði hún ekki mikinn áhuga á að
starta ferlinum í kennslunni. Hún
leitaði út fyrir Eyjarnar og fékk
vinnu í Reykjavík við glerblástur í
Marel, kenndi sund hjá Stjörnunni
í Garðabæ, vann í smátíma á
sambýli í Garðabæ og á vistheim-
ili barna í Reykjavík. „Vinnan þar
kom mér alveg niður á jörðina,“
segir Karítas sem eftir það byrjaði
að vinna sem afleysingakennari í
Hörðuvallaskóla og í Álfhólsskóla
og var hún umsjónarkennari í
þeim síðarnefnda í þrjú ár. Í dag
starfar Karítas sem annar stýri-
maður á Herjólfi.
Sjómennskan heillaði
Fram til þessa hefur hún unnið
sumur hér og þar á sjó. Eitt sumar
var hún á handafærum á Horna-
firði á Sævari SF á ufsaveiðum.
Skipstjórann, Ómar Frans Frans-
son, og segir hún að hafi gefið sér
sitt fyrsta tækifæri á sjó en áður
hafði hún reynt að fá pláss á öll-
um bátum í Eyjum. „Ég á honum
margt að þakka. Ég fór síðan einn
humartúr á Steinunni SF áður en
þær veiðar voru bannaðar. Næst
fór ég á Sindra VE hjá Vinnslu-
stöðinni og fékk þann heiður að
hafa Sverri Gunnlaugsson sem
skipstjóra. Einnig prófaði ég
hvalveiðar en ákvað að eltast ekki
við það.“
Karítas er lærður stýrimaður og
kennari. Á þeim tíma sem Karítas
lærði stýrimanninn voru fimm til
sex konur á sama tíma og hún í
námi. „Eftir að laxeldi óx hér á
landi hafa fleiri konur skráð sig
í smáskipanámskeið, sem gefur
réttindi á báta 15 metra langa og
undir. Einnig hafa þær verið að
skrá sig á skemmtibátanámskeið
sem gefur réttindi á skip 24 metra
og undir. Þær leynast þarna og
þeim fjölgar.“
Karítas segir starfið á Herjólfi
vera draumavinnuna. „Ég elska að
vinna um borð og fá að taka þátt í
siglingunni á skipinu, spá í veður
og sjólag og læra af skipstjórum
og stýrimönnum. Ég hitti mikið
af fólki og líkar vel að geta veitt
þeim góða þjónustu. Andinn um
borð er mjög góður, allir já-
kvæðir og mæta hressir til vinnu.
Skipstjórarnir eru til fyrirmyndar
og veigra sér ekki við að hjálpa
til í hvaða verkefnum sem er, þeir
setja okkur gott fordæmi.“
Líður vel í Eyjum
Karítas segir starfið henta fjöl-
skyldulífinu vel. „Einn af mörgum
kostum við að vinna á Herjólfi er
að koma aftur í land til fjöl-
skyldunnar þegar vaktinni lýkur.
Á tímabili var þetta strembið
þegar Anna vann í lögreglunni og
hún á vöktum líka. Eftir að hún
hóf störf á HSU breyttist þetta til
hins betra. Við fáum mikla aðstoð
frá fjölskyldunni. Mamma, pabbi
og Írena systir hafa heldur betur
stutt við bakið á okkur og langafi
og langamma brúa bilið. Það
leggjast allir á eitt til að hjálpa
okkur ef þarf.“
Ef Karítas fengi að ráða myndi
hún starfa á Herjólfi út lífið.
„Önnu Kristínu hefur verið tekið
mjög vel hérna og hún komist
vel inn í samfélagið. Ég hef ekki
áhyggjur af því að hún fari að
draga mig upp á land aftur, nema
hún vilji starfa aftur sem svæf-
ingarhjúkrunarfræðingur sem
ég veit að hana langar. Hafþóri
Frank líður vel á leikskólanum
Sóla og nýtur þess að vera hjá
fjölskyldunni.„Það er margt
jákvætt að búa með fjölskylduna
í Eyjum.“
Í lokin vill Karítas kasta þakk-
lætiskveðju á Hörð Orra fram-
kvæmdastjóra Herjólfs og á
skipstjórana og stýrimennina.
„Þeir vita af hverju,“ segir hún.
Karítas Þórarinsdóttir, stýrimaður hefur víða komið við:
Starfið á Herjólfi er draumavinnan
DÍANA ÓLAFSDÓTTIR
diana@eyjafrett ir. is