Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 01.06.2023, Síða 4

Fréttir - Eyjafréttir - 01.06.2023, Síða 4
4 | | 1. júní 2023 „Þetta byrjaði í galsa á landstím- inu, okkur langaði að gera eitthvað og hugmyndin um að taka myndir varð til. Þá var alvara komin í spilið og við fórum að tala um krabbamein. Öll þekkj- um við einhvern sem hefur sem hefur orðið fyrir barðinu á þessum vágesti. Þá vaknaði spurningin, hvað getum við gert?“ segir Agnar Hjálmarsson, vélstjóri á Dala Rafni VE og Suðurey VE. Já, það dugar ekki minna en tvö skip fyrir þessa kalla sem láta verkin tala. Dala Rafn er togskip en þegar kemur að uppsjávarveið- um hoppa þeir yfir á Suðurey. „Það er kokkurinn, Sigurður Símonarson sem er hugmynda- smiðurinn enda málið skylt því Sigurbjörg Kristín Óskarsdóttir, formaður Krabbavarnar í Vest- mannaeyjum er systir hans. Það var drifið í hlutunum og áður en í land var komið var búið að taka mynd af strákunum og þegar í land var komið létu þeir útbúa dagatal með myndunum, 100 stykki sem þeir seldu á 5000 krónur stykkið. Auðvitað var eft- irspurnin meiri en framboðið enda myndarlegir drengir á Dala Rafni. Afraksturinn, hálf milljón króna sem þeir afhentu Krabbavörn á ráðstefnum sem félagið hélt í vetur. Hér að neðan má sjá nokkrar myndir af drengjunum, flottir eru þeir og stæltir. Léttklæddir sjómenn til hjálpar Krabbavörn Áhöfnin á Suðurey í lok loðnuvertíðar, f.v. Friðjón Jónsson, Anton Máni Sigfússon, Hlynur Sigtryggsson, Jón Viðar Óðinsson, Jóel Þór Ómarsson, Helgi Geir Valdimarsson, Sigurður Þór Símonarsson, Pétur Andersen, Sigurður Sveinsson, Agnar Ingi Hjálmarsson, Ingi Grétarsson, Ívar Torfason og Willum Andersen.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.