Fréttir - Eyjafréttir - 01.06.2023, Page 30
30 | | 1. júní 2023
Fannar Freyr Bjarnason, háseti á uppsjáv-
arskipinu Sigurði VE hefur síðustu ár tekið
myndir og borð og notar til þess nýjustu
tækni. Hann lánaði okkur nokkrar myndir
sem hann tók á loðnuvertíðinni í vetur.
„Ég byrjaði sem háseti á Sigurði 2017 en
var áður hjá Ísfélaginu á Guðmundi VE í
ellefu ár,“ segir Fannar Freyr. „Ég byrjaði
að taka myndir fyrir fjórum til fimm árum.
Er með ágæta Canon vél og öflugan
dróna sem ég nota við myndatökurnar.
Það getur verið flókið að taka myndir
með dróna úti á sjó og ómögulegt nema í
mjög góðu veðri og sléttum sjó.
Það er ekki hægt að lenda drónanum um
borð og er maður annað hvort frammi á
stefni eða aftur á gálga að stýra honum.
Með lífið í lúkunum því eina ráðið er að
stýra drónanum sem næst manni, slökkva
á öllum nemum og grípa hann. Annars
endar hann í sjónum eða brotlendir um
borð,“ segir Fannar.
En útkoman er góð og myndirnar sýna
vel það sem fram fer á miðunum þegar
nót er kastað og hún dregin um borð. Á
myndunum eru Sigurður VE og Ísleifur VE
Kíkt í myndasafnið hans Fannars Freys