Stuðlaberg - 01.11.2021, Page 30

Stuðlaberg - 01.11.2021, Page 30
30 STUÐLABERG 2/2021 Að ríma sér til skemmtunar Jón Kristjánsson segir frá vísnagerð þingmanna Ég tók sæti á Alþingi Íslendinga sem aðalmaður um miðjan níunda áratug síð- ustu aldar og hafði þá komið þar nokkrum sinnum inn sem varamaður. Satt að segja eru mér ekki minnisstæðar miklar yrkingar frá þessum fyrstu árum. Hins vegar var alltaf haldið fast í þá venju að bannað var að taka til máls í þingveislum, nema í bundnu máli. Það kom hins vegar fyrir að þingmenn komu með kvæðabálka að heiman sem fjölluðu gjarna um viðkvæm pólitísk mál. Ég minnist langrar ádrepu eftir Stefán Valgeirsson, sem var innlegg í umræðu um Evrópusambandið Eins kvaddi Brynhildur Jóhannsdóttir, eigin- kona Alberts Guðmundssonar, sér einhvern tímann hljóðs og fór með kvæði sem var inn- legg í stjórnmálaumræðu dagsins. Fleiri gátu þó kastað fram vísum og man ég eftir Halldóri Blöndal, Páli Péturssyni og Steingrími J. Sigfússyni á þeim vettvangi. Sighvatur Björgvinsson kom fljótlega til leiks. Hins vegar held ég að mesti hæfileika- maðurinn á þessu sviði hafi verið Friðjón Þórðarson, en honum var lýrikin úr Dölum í blóð borin. Eins má rifja upp að Ólafur Þórðarson, þáverandi þingmaður Vest- firðinga, bjó með endur uppi í Reykholtsdal, nánar tiltekið á Vilmundarstöðum. Það kom salmonella í þessar endur og þurfti að lóga þeim. Þingveisla var um þessar mundir og ekki vildi betur til en svo að það voru endur í matinn. Þetta leiddi af sér að margir gerð- ust hagyrðingar og fóru með leirburð sem var engan veginn hæfur við matarborð. Þá kvaddi Friðjón Dalamaður sér hljóðs og fór með eftirfarandi vísu: Þegar vermir vorsins hönd vetrardægrin ljósu kemur hingað ofnsteikt önd undir berjasósu. Þessi vísa fannst mér vera eins og hvít dúfa inn í allan leirburðinn. Ég náði að vera sam- tíða Stefáni Jónssyni fréttamanni þegar ég kom fyrst inn sem varamaður. Hann var mik- ill sögumaður og hagyrðingur og orti gjarna í orðastað annarra, samanber vísu sem hann lagði í munn Jóni Pálmasyni, sem var glað- beittur sveitarhöfðingi frá Akri í Húnaþingi. Vísan var á þessa leið: Oft ég hugsa heim til þín, helst þegar ég er rakur. Blessuð sértu sveitin mín, sérstaklega Akur. Stefán Guðmundsson var mikill mála- fylgjumaður og vaskur baráttumaður fyrir kjördæmið, þar með talda heimabyggð sína, Sauðárkrók. Ekki man ég nákvæmlega hvert málið var, að öðru leyti en því að það fjallaði R ag nh ild u r A ða ls te in sd ót ti r Jón sat á Alþingi frá 1984 til 2007 og var heil brigðis- og félagsmálaráðherra í fimm ár.

x

Stuðlaberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stuðlaberg
https://timarit.is/publication/1892

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.