Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 06.09.2023, Blaðsíða 3
Framkvæmdafréttir nr. 726
4. tbl. 31. árg.
3
Um Arnarnesveg:
Framkvæmdirnar felast í nýbyggingu Arnarnesvegar
frá Rjúpnavegi að Breiðholtsbraut með tveimur
hringtorgum, vegbrú yfir Breiðholtsbraut og
einum ljósastýrðum vegamótum ásamt breikkun
Breiðholtsbrautar frá Jaðarseli að Vatnsendahvarfi.
Í verkinu eru tvenn undirgöng og tvær brýr fyrir
gangandi og hjólandi, stofnstígar og stígatengingar.
Auk þess tilheyrir verkinu lagning nýrrar hitaveituæðar
Veitna, Suðuræðar II. Einnig verður unnið við
hljóðdeyfigarða og hljóðveggi, regnvatnslagnir,
snjóbræðslulagnir, settjörn, regnbeð, götulýsingu og
lagnir fyrir upplýsingakerfi Vegagerðarinnar.
Auk vegagerðarinnar verða eftirfarandi mannvirki byggð:
→ Akstursbrú yfir Breiðholtsbraut með aðskildum
göngu- og hjólastíg.
→ Göngu- og hjólabrú yfir Arnarnesveg sem tengir
stofnstíga milli Reykjavíkur og Kópavogs.
→ Undirgöng undir Breiðholtsbraut við Suðurfell /
Jaðarsel.
→ Undirgöng undir Arnarnesveg við Rjúpnaveg.
→ Hringtorg á mótum Arnarnesvegar og Rjúpnavegar.
→ Hringtorg á mótum Arnarnesvegar og
Vatnsendavegar.
→ Stofnstígur gangandi og hjólandi frá Rjúpnavegi yfir í
Elliðaárdal.
→ Göngu- og hjólabrú á Dimmu.
Verkið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar,
Reykjavíkur, Kópavogs, Betri samgangna
ohf., Veitna og Mílu. Verkið er fjármagnað af
Samgöngusáttmálanum, sem gerður var 2019 milli
ríkisins og sveitarfélaganna sex á höfuðborgarsvæðinu,
þar sem markmiðið er m.a. að stuðla að auknu
umferðaröryggi, hagkvæmum, greiðum og skilvirkum
samgöngum á höfuðborgarsvæðinu með jafnri
uppbyggingu innviða allra samgöngumáta.
←
Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra
tekur fyrstu skóflustunguna að þriðja áfanga
Arnarnesvegar 23. ágúst 2023.
↓
Horft í suðvesturátt eftir Arnarnesvegi.
Hér má sjá gatnamót við Breiðholtsbraut.