Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 06.09.2023, Blaðsíða 6

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 06.09.2023, Blaðsíða 6
6 Framkvæmdafréttir nr. 726 4. tbl. 31. árg. Formleg opnun brúa yfir Núpsvötn og Hverfisfljót Einbreiðum brúm á Hringvegi (1) fækkaði um tvær með tilkomu nýrra tvíbreiðra brúa yfir annars vegar Núpsvötn og hins vegar Hverfisfljót, og eru þær nú orðnar 29 talsins. Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, opnuðu brýrnar formlega fimmtudaginn 29. júní, með því að klippa á borða við hátíðlega athöfn á brúnni yfir Núpsvötn. Umferðaröryggi eykst til muna með nýju, tvíbreiðu brúnum sem stuðla einnig að greiðari samgöngum. Áður var brúin yfir Núpsvötn sú brú þar sem flest slys hafa orðið við einbreiða brú á Hringvegi. Verkið; Hringvegur (1) um Hverfisfljót og Núpsvötn, var boðið út sumarið 2021. Var verksamningur við ÞG-verk ehf. undirritaður 6. ágúst 2021. Framkvæmdir hófust í september sama ár, en áður hafði brúarvinnuflokkur Vegagerðarinnar lokið niðurrekstri staura vegna brúarinnar yfir Núpsvötn. Eftirlit með verkinu var boðið út og annaðist verkfræðistofan Mannvit eftirlit. Verkefnastjórn og umsjón framkvæmda var í höndum framkvæmdadeildar Vegagerðarinnar. Árið 1990 voru einbreiðar brýr á Hringvegi hátt í 140 talsins. Þeim fækkaði hratt og voru orðnar um 60 í kringum 2006 og 42 árið 2011. Síðan hægðist verulega á slíkum framkvæmdum og aðeins voru breikkaðar eða byggðar nýjar brýr í stað 6 einbreiðra brúa á átta árum. Árið 2021 voru brýrnar orðnar 32. Með byggingu tvíbreiðra brúa yfir Jökulsá á Sólheimasandi, Núpsvötn og Hverfisfljót eru einbreiðu brýrnar á Hringvegi 29 talsins. Brúin yfir Hverfisfljót Nýja tvíbreiða brúin yfir Hverfisfljót er 74 metra löng og er staðsett um 20 metrum neðan við gömlu brúna sem reist var árið 1968 og var 60 metra löng. Einnig var innifalið í verkinu vegtenging og endurbygging á um 2 kílómetra kafla auk gerð áningarstaðar. Brúin og vegir voru hönnuð á hönnunardeild Vegagerðarinnar. Brúin er samverkandi stálbitabrú með steyptu gólfi í þremur höfum. Nýr vegur og brúin eru í nýju vegstæði á 1,1 kílómetra kafla og endurbyggður vegur í fyrra vegsvæði einn kílómetri. Byggður var nýr áningarstaður í stað fyrri áningarstaðar sem lenti undir vegtengingu brúarinnar. Brúin yfir Hverfisfljót var opnuð fyrir umferð í nóvember 2022. Brúin yfir Núpsvötn Nýja tvíbreiða brúin yfir Núpsvötn er 138 metra löng og kemur í stað brúarinnar sem reist var árið 1973 og er 420 metra löng. Í verkinu var einnig innifalin gerð vegtenginga og endurbygging núverandi vegar á um 2 kílómetra kafla auk áningarstaðar. Brúin, ásamt vegtengingum, var hönnuð af verkfræðistofunni VSÓ Ráðgjöf. Brúin er eftirspennt steinsteypt brú með steyptu gólfi í fimm höfum. Nýr vegur og ný brú eru í nýju vegstæði á 1,1 kílómetra löngum kafla. Einnig var byggður nýr áningarstaður vestan nýju brúarinnar. Brúin yfir Núpsvötn var opnuð fyrir umferð í byrjun júní 2023. → Gamla og nýja brúin yfir Núpsvötn. Mynd: Vilhelm Gunnarsson ↓ Bergþóra Þorkelsdóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson fagna opnun nýrra brúa yfir Núpsvötn og Hverfisfljót.

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.