Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 06.09.2023, Síða 6
6 Framkvæmdafréttir nr. 726
4. tbl. 31. árg.
Formleg opnun brúa yfir
Núpsvötn og Hverfisfljót
Einbreiðum brúm á Hringvegi (1) fækkaði um
tvær með tilkomu nýrra tvíbreiðra brúa yfir
annars vegar Núpsvötn og hins vegar Hverfisfljót,
og eru þær nú orðnar 29 talsins. Sigurður Ingi
Jóhannsson innviðaráðherra og Bergþóra
Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, opnuðu
brýrnar formlega fimmtudaginn 29. júní, með því
að klippa á borða við hátíðlega athöfn á brúnni
yfir Núpsvötn.
Umferðaröryggi eykst til muna með nýju, tvíbreiðu
brúnum sem stuðla einnig að greiðari samgöngum.
Áður var brúin yfir Núpsvötn sú brú þar sem flest slys
hafa orðið við einbreiða brú á Hringvegi.
Verkið; Hringvegur (1) um Hverfisfljót
og Núpsvötn, var boðið út sumarið 2021. Var
verksamningur við ÞG-verk ehf. undirritaður 6. ágúst
2021. Framkvæmdir hófust í september sama ár, en
áður hafði brúarvinnuflokkur Vegagerðarinnar lokið
niðurrekstri staura vegna brúarinnar yfir Núpsvötn.
Eftirlit með verkinu var boðið út og annaðist
verkfræðistofan Mannvit eftirlit. Verkefnastjórn
og umsjón framkvæmda var í höndum
framkvæmdadeildar Vegagerðarinnar.
Árið 1990 voru einbreiðar brýr á Hringvegi hátt
í 140 talsins. Þeim fækkaði hratt og voru orðnar um
60 í kringum 2006 og 42 árið 2011. Síðan hægðist
verulega á slíkum framkvæmdum og aðeins voru
breikkaðar eða byggðar nýjar brýr í stað 6 einbreiðra
brúa á átta árum. Árið 2021 voru brýrnar orðnar
32. Með byggingu tvíbreiðra brúa yfir Jökulsá á
Sólheimasandi, Núpsvötn og Hverfisfljót eru einbreiðu
brýrnar á Hringvegi 29 talsins.
Brúin yfir Hverfisfljót
Nýja tvíbreiða brúin yfir Hverfisfljót er 74 metra löng
og er staðsett um 20 metrum neðan við gömlu brúna
sem reist var árið 1968 og var 60 metra löng. Einnig
var innifalið í verkinu vegtenging og endurbygging á
um 2 kílómetra kafla auk gerð áningarstaðar. Brúin og
vegir voru hönnuð á hönnunardeild Vegagerðarinnar.
Brúin er samverkandi stálbitabrú með steyptu gólfi í
þremur höfum. Nýr vegur og brúin eru í nýju vegstæði
á 1,1 kílómetra kafla og endurbyggður vegur í fyrra
vegsvæði einn kílómetri. Byggður var nýr áningarstaður
í stað fyrri áningarstaðar sem lenti undir vegtengingu
brúarinnar.
Brúin yfir Hverfisfljót var opnuð fyrir umferð í
nóvember 2022.
Brúin yfir Núpsvötn
Nýja tvíbreiða brúin yfir Núpsvötn er 138 metra löng
og kemur í stað brúarinnar sem reist var árið 1973 og
er 420 metra löng. Í verkinu var einnig innifalin gerð
vegtenginga og endurbygging núverandi vegar á um
2 kílómetra kafla auk áningarstaðar. Brúin, ásamt
vegtengingum, var hönnuð af verkfræðistofunni VSÓ
Ráðgjöf. Brúin er eftirspennt steinsteypt brú með
steyptu gólfi í fimm höfum. Nýr vegur og ný brú eru í
nýju vegstæði á 1,1 kílómetra löngum kafla. Einnig var
byggður nýr áningarstaður vestan nýju brúarinnar.
Brúin yfir Núpsvötn var opnuð fyrir umferð í byrjun
júní 2023.
→
Gamla og nýja brúin yfir Núpsvötn.
Mynd: Vilhelm Gunnarsson
↓
Bergþóra Þorkelsdóttir og
Sigurður Ingi Jóhannsson fagna
opnun nýrra brúa yfir Núpsvötn og
Hverfisfljót.