Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 06.09.2023, Blaðsíða 17

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 06.09.2023, Blaðsíða 17
Framkvæmdafréttir nr. 726 4. tbl. 31. árg. 17 ↑ Stefán Grímur Sigurðsson varði verkefnið Ólínuleg greining á steyptum stoðveggjum með einingarðferðinni. Meginmarkmiðið í þessu verkefni var að búa til ólínuleg reiknilíkön byggð á einingaraðferðinni til að herma tilraunaniðurstöður frá stoðveggjaeiningunum tveimur sem prófuð voru á tilraunagólfi Umhverfis- og byggingarverkfræðideildar Háskóla Íslands VR-III og fjallað var um í ritgerð Franz sem lýst er hér að framan. Líkanið var byggt upp í opna hugbúnaðinum OpenSees sem var þróaður í University of California, Berkeley. Notaðar voru tvennskonar megingerðir af líkönum, annars vegar trefjabitalíkön (e. fiber section model) og hins vegar svokölluð bitastangalíkön (e. beam-truss model). Trefjabitalíkön henta vel til að herma einingar þar sem beygjuvægishegðun er ráðandi á meðan bitastangalíkön geta hermt bæði beygjuvægis- og skerkraftahegðun. Í báðum líkangerðunum er notast við trefjaþversnið þar sem hver þráður innan þversniðs getur haft mismunandi ólínulega efniseiginleika allt eftir því hvort hann er að herma óbendilukta steypu (e. unconfined concrete), bendilukta steypu, eða járnbendingu. Í verkefninu voru nokkrar mismunandi útfærslur af líkönum prófaðar fyrir hvora líkangerð fyrir sig sem og mismunandi efnislíkön fyrir steypu og stál. Á mynd 3 eru sýnd þrjú ólík bitastangalíkön sem voru reynd í verkefninu. Heilt yfir gekk ágætlega að herma tilraunaniðurstöðurnar. Leiðbeinendur í verkefninu voru dr. Bjarni Bessason prófessor, dr. Ching-Yi Tsai rannsóknasérfræðingur, og dr. Dórótea Höeg Sigurðardóttir lektor, hjá Umhverfis- og byggingarverkfræðideild Háskóla Íslands. Prófdómari var Eggert V. Valmundsson, verkfræðingur hjá Verkís. ↓ Mynd 3. Þrjú mismunandi bita-stangalíkön sem prófuð voru í meistaraverkefni Stefáns Gríms Sigurðssonar til að herma tilraunaniðurstöður frá stoðveggjaprófunum sem framkvæmd voru í VR-III í Háskóla Íslands.

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.