Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 06.09.2023, Blaðsíða 20

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 06.09.2023, Blaðsíða 20
20 Framkvæmdafréttir nr. 726 4. tbl. 31. árg. Útboðsverkið er á Vatnsnesi vestanverðu, við Miðfjörð í Húnaþingi vestra. Vegkaflinn liggur um lönd jarðanna Ytri-Kárastaða, Syðri-Ánastaða 1 og 2, Ytri-Ánastaða, Bólstaða og Skarðs. Verkið felst í endurbyggingu Vatnsnesvegar (711) á um 7,1 km löngum kafla, frá núverandi slitlagi við Ytri-Bæjarlæk norðan Kárastaða og norður fyrir Krossavallalæk norðan við Skarð. Núverandi vegur er um 4,5 - 5,5 m breiður malarvegur og verður hann breikkaður í 6,0 m breiða akbraut með 0,5 m breiðum öxlum. Vegurinn verður endurbyggður að mestu leyti í vegstæði núverandi vegar og hliðrast aðeins lítillega, nema við bæinn Skarð og norðan við Skarðsá þar sem hann hliðrast um allt að 15 m. Á nokkrum stöðum verður hann hækkaður lítillega eða lækkaður en mest verður hann lækkaður á um 300 m kafla norðan við Skarðsá. Vatnsnesvegur (711) Kárastaðir – Skarð Vegagerðin hefur samið við Þrótt ehf. á Akranesi um framkvæmdina; Vatnsnesvegur (711) Kárastaðir – Skarð. Verkið felst í endurbyggingu Vatnsnesvegar (711) á um 7,1 km löngum kafla. Við Grímsá, Syðriá og Litlá verða steypt ræsi brotin niður og fjarlægð og í stað þeirra koma stór röraræsi. Vegurinn verður með bundnu slitlagi. ↑ Vatnsnesvegur. Hér sést bærinn Skarð en á hæðinni norðan megin verður vegurinn lækkaður. ↘ Vatnsnesvegur. Hér sést í Syðri og Ytri Ánastaði og fjarska glittir í Skarðsvita.

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.