Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 06.09.2023, Blaðsíða 28

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 06.09.2023, Blaðsíða 28
28 Framkvæmdafréttir nr. 726 4. tbl. 31. árg. Vinnur að nýjum vef Vegagerðarinnar Hvað hefur þú unnið lengi hjá Vegagerðinni? Ég hóf störf hjá Vegagerðinni í byrjun maí á þessu ári. Þannig að ég er fjögurra mánaða. Í hverju felst starfið þitt? Stóra verkefnið þessa dagana er að vinna að nýjum vef vegagerdin.is, þróun á innri vef Vegagerðarinnar og auðvitað viðhald á núverandi vef vegagerdin.is, þróun á umferdin.is og sjolag.is Á nýjum vef verður hægt að tengja fréttir, verkefni og tengt efni við hverja síðu og því mikil vinna í að skrá fréttir, verkefni, rannsóknarskýrslur og sjá til þess að þetta birtist allt saman rétt á vefnum. Það eru gríðarlega miklar upplýsingar á núverandi vef og töluverð vinna sem fer í að grisja það efni sem fer á nýjan vef og velja úr. Í mínu starfi er nauðsynlegt að vera í góðu sambandi við sérfræðina þvert á stofnunina og hitta fólk sem þekkir vel sinn málaflokk og ber ábyrgð á að upplýsingarnar og texti sér réttur. Vonandi getum við komið nýja vefnum í loftið í byrjun árs 2024. Við hvað vannstu áður en þú komst til starfa hjá Vegagerðinni? Ég hef fjölbreytta reynslu af vinnumarkaði en síðustu mánuðina áður en ég hóf störf hjá Vegagerðinni var ég í markaðsdeild KPMG. Þar sá ég meðal annars um vefsíðu KPMG, innri vef, innri samfélagsmiðil félagsins og innri upplýsingagjöf eins og upplýsingaskjá og fréttir á innri vefi. Á undan því starfaði ég sem vefstjóri hjá Tryggingastofnun, TR. Hjá TR sá ég um vefinn og mínar síður, miðlun upplýsinga á vef og innri upplýsingagjöf. Þá hef ég líka starfað hjá Orkustofnun sem verkefnastjóri kynningarmála og erlendra samskipta auk margs annars, en fyrsta starfið fyrir utan barnapíustörf var hjá Pósthúsinu í Hafnarfirði þegar ég bar út póstinn þá fjórtán ára. Ég er með B.A próf í frönsku og viðskiptafræði og M.A. í blaða- og fréttamennsku en ég útskrifaðist í byrjun árs 2008. Svo hef ég bætt við mig allskonar áhugaverðum námskeiðum á síðustu árum í tengslum við vefmál, almannatengsl og stafræn markaðsmál. Hvernig er hefðbundinn vinnudagur? Hefðbundinn vinnudagur byrjar á því að fara yfir verkefnalista, tölvupósta og plana daginn. Svo fer það eftir því hvaða verkefni ég er að vinna að hverju sinni sem tekur við. Síðustu vikur hefur langmestum tíma verið varið í nýjan vef enda af nógu að taka þar. Hvað er skemmtilegast við starfið? Skemmtilegast er að búa til flottan vef með skapandi og skemmtilegu fólki. Þá hlakka ég svakalega til að koma nýju vefsíðunni í loftið. Alltaf gaman að klára verkefnin og sjá nýja vefi fara í loftið. Hvað er mest krefjandi við starfið? Það sem er mest krefjandi og það sem kom kannski mest á óvart er hversu gríðarlega umfangsmikil núverandi vefsíða er. Þá reynir á að velja úr það sem er mikilvægast, greina hvað þarf að vera og hvað má missa sín. Ég er sífellt að rekast á eitthvað nýtt efni á vefnum og hef fundið efni á vefnum undir sögunni sem er frá árinu 1880 og margar aðrar gersemar sem leynast þar. Verkefni Vegagerðarinnar eru virkilega fjölbreytt og margt sem ég hef lært undanfarna þrjá mánuði. Hvaða áhugamál hefur þú og hvað fæstu við fyrir utan vinnuna? Þessa dagana er golf, veiði og sumarhúsið aðaláhugamálið. Annars er ég smá dellukona og hef stundað allskonar áhugamál síðustu ár eins og hestamennsku, útihlaup og veiði á sumrin en svo á veturna er það ræktin, skíði og gönguskíði. Þá hef ég átt nokkra góða spretti í prjónaskap og prjónað nokkrar peysur. Ég elska að ferðast bæði hér heima og erlendis og svo auðvitað gæðastundir með fjölskyldunni. Vegagerðin í nær ynd Yfir 300 manns starfa hjá Vegagerðinni og störfin eru bæði fjölmörg og fjölbreytt á láði, legi og í lofti. Í þessum greinaflokki verður skyggnst inn í hin ólíku störf sem unnin eru hjá stofnuninni. Petra Steinunn Sveinsdóttir er vefstjóri Vegagerðarinnar. Stærsta verkefnið þessa daga er að þróa nýjan vef Vegagerðarinnar, vegagerdin.is. ↘ Petra á fjölmörg áhugamál, meðal annars fluguveiði.

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.