Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 06.09.2023, Síða 10

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 06.09.2023, Síða 10
10 Framkvæmdafréttir nr. 726 4. tbl. 31. árg. Leiðist aldrei í vinnunni „Mér finnst alltaf svo gaman í vinnunni. Ég er búin að vera í sautján ár með þessum vinnuflokki og hefur ekki leiðst einn einasta dag. Það er frábært að keyra um og vera sjaldan lengi á sama stað, maður kynnist nýju fólki og nýjum stöðum. Og þótt aðstaðan sé mjög misjöfn eftir staðsetningu þá gerir það ekkert til,“ segir Hrefna og bætir við að vissulega sé mismikið að gera hjá sér eftir hverju verkefni. „Ég er meira ein þegar strákarnir eru að vinna lengra frá búðunum, þá útbý ég handa þeim nesti. En ef við erum með allar vinnubúðirnar með okkur þá er aldeilis nóg að gera, því ég sé líka um öll þrifin, skipti um á rúmum og þvæ þvott.“ Hún segir að oft sé þörf á því að taka herbergjagámana með, sérstaklega í verkefni á Suður- og Suðausturlandi. „Þar er í raun vonlaust að fá gistingu á sumrin vegna fjölda ferðamanna.“ Harmóníkutónar stytta stundir við aksturinn Þar sem verkefni brúarvinnuflokksins eru víða um land þarf Hrefna oft að keyra langar leiðir til vinnu. „Mér leiðist aldrei að keyra. Ég bara set harmóníkumúsíkina á og ek af stað. Reyndar held ég að bíllinn fari ekki af stað fyrr en tónlistin fer að hljóma,“ segir hún brosandi en Hrefna hefur verið unnandi harmóníkutónlistar frá unga aldri og sækir allar þá harmóníkuviðburði sem hún getur. „Það gefur mér svo mikla gleði,“ segir hún kát í bragði. Hrefna segist annars vera á besta bílnum, Toyota Rav. „Ég hef átt slíka bíla lengi og endurnýja þá á nokkurra ára fresti, mér finnst ég öruggari í umferðinni þannig,“ segir hún og bætir kímin við að hún fari síðan með Toyota-bænina kvölds og morgna, og sýnir bænina sem hún hefur útprentaða á ísskápnum í vinnubúðunum. Aldrei upplifað aðra eins törn Starfsfólk brúarvinnuflokksins vinnur vanalega frá mánudegi til fimmtudags, frá sjö til sjö. Síðan er frí föstudag, laugardag og sunnudag. Brúarvinnuflokkurinn gegnir almannavarnarhlutverki sem þýðir að hann þarf að vera tilbúinn að stökkva til ef til dæmis brýr skemmast í náttúruhamförum. Þá skiptir engu hefðbundinn vinnutími heldur er allt sett til hliðar til að koma á samgöngum að nýju. Hrefna hefur upplifað slíkt, en það var þegar brúin yfir Múlakvísl skemmdist í flóðum árið 2011. „Á þeim tíma vorum við að vinna nálægt Flúðum og þurftum að flytja vinnubúðirnar og allan mannskapinn, einn, tveir og tíu að Múlakvísl,“ segir Hrefna en þar sem flóðið varð um helgi var Hrefna stödd heima hjá sér á Höfn. „Þá þurfti ég að keyra Fjallabak til að komast í vinnubúðirnar. Það hafði ég aldrei farið áður og var skíthrædd við að keyra yfir þessar ár þó lítið væri í þeim. Í hvert skipti sem ég kom að á, hringdi ég í sveitunga minn sem hafði oftsinnis ekið Fjallabaksleið og fékk ráðleggingar um hvernig best væri að fara yfir.“ Við tók löng og ströng törn hjá starfsmönnum brúarvinnuflokksins og matráði þeirra. „Þetta var mjög gaman en mikil vinna. Ég fór úr því að elda fyrir sjö manns og upp í 107 daginn sem bráðabirgðabrúin yfir Múlakvísl var opnuð. Sem betur fer gat ég fengið vinkonu mína með mér sem var nýkomin í sumarfrí, það bjargaði mér alveg,“ segir Hrefna sem svaf um þrjá tíma á nóttu þessa daga sem smíðin stóð yfir. Báðir brúarvinnuflokkar Vegagerðarinnar voru þarna að störfum ásamt fleira fólki. „Ég hef aldrei upplifað aðra eins törn og aldrei á ævinni orðið eins þreytt og þegar þetta var búið.“

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.