Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 23.10.2023, Blaðsíða 9

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 23.10.2023, Blaðsíða 9
Framkvæmdafréttir nr. 727 5. tbl. 31. árg. 9 „Við ókum með rafgeymana norður til móts við þá Landhelgisgæslumenn þann 17. ágúst. Síðan voru þeir ferjaðir með einum léttabátnum um borð í Freyju. Þar voru þeir gerðir klárir fyrir þyrluferðina. Síðan fór ég í land í Málmey ásamt þremur starfsmönnum Gæslunnar til að undirbúa komu rafgeymanna, en við þurftum að aftengja gömlu rafgeymana og færa þá út. Svo nýttum við tímann meðan við biðum eftir þyrlunni til að sinna viðhaldi.“ TF-EIR, sem hafði verið í öðru verkefni sem fólst í að ferja vísindamenn að skjálftasvæðinu við Skjálfandaflóa og Gjögurtá, kom loks og ferjaði nýju rafgeymana úr varðskipinu út í eyju, og tók þá gömlu til baka, þeir voru 21 talsins og vógu 440 kíló. „Það gekk allt upp eins og í sögu enda veðrið fallegt. Við prófuðum síðan búnaðinn og allt lítur mun betur út núna,“ segir Guðmundur sem er afar þakklátur góðu samstarfi við starfsmenn Landhelgisgæslunnar. → Þyrlan TF-EIR flytur níðþunga rafgeymana út í Málmey. ↘ TF-EIR og varðskipið Freyja úti fyrir Málmey á Skagafirði. ↓ Guðmundur Jón Björgvinsson með tveimur starfsmönnum Gæslunnar.

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.