Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 23.10.2023, Blaðsíða 13

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 23.10.2023, Blaðsíða 13
Framkvæmdafréttir nr. 727 5. tbl. 31. árg. 13 Veggreinir. Veggreinir er hátæknimælibíll sem tekinn var í notkun hjá Vegagerðinni árið 2018. Hann er afar vel útbúinn og getur mælt yfirborð, nánasta umhverfi og uppbyggingu vega með auðveldum hætti. Á meðan bílnum er ekið er gögnum safnað með myndatökum og mælingum. Mælingarnar eru svo lesnar inn í sérútbúinn hugbúnað sem aðstoðar við ástandsmat vega og getur þannig aðstoðað starfsmenn Vegagerðarinnar við að forgangsraða vegum sem þarfnast viðhalds og meta umferðaröryggi þeirra. Jarðsjárdróni. Með jarðsjárdrónanum, sem keyptur var í sumar, var stigið stórt skref í hugbúnaði og úrvinnslu jarðsjárgagna hjá Vegagerðinni. Dróninn kemst mun víðar en hefðbundin jarðsjá og hann má nota til að auka öryggi í rannsóknum, auka nákvæmni áætlana og magntöku. Með upplýsingum úr jarðsjárdróna er til dæmis hægt að minnka líkur á að upp komi óvæntar aðstæður við framkvæmdir. Rannsóknastofa. Rannsóknastofa Vegagerðarinnar flutti í nýtt og betra húsnæði sumarið 2021. Þá var tækjabúnaður hennar endurnýjaður að stórum hluta. Á rannsóknastofunni í Garðabæ eru framkvæmdar ýmsar grunnrannsóknir en á Vísindavöku var kynnt hvað þar fer fram. Þversnið af vegi. Á Vísindavöku var til sýnis sívalningur sem sýndi hvernig uppbygging vegar á að vera. Neðsta lagið er fylling, þá kemur styrktarlag, burðarlag og loks slitlag. Bein útsending frá jarðhita undir vegi í Hveradölum. Aukin jarðhitavirkni mældist undir Hringvegi (1) í Hveradalabrekku, við Skíðaskálann í Hveradölum, í maí. Vegagerðin vinnur að rannsóknum á svæðinu en á Vísindavöku var meðal annars sýnd bein útsending frá hitamyndavél af svæðinu. ↑ Fremst má sjá falllóðið, þá jarðsjárdrónann og loks veggreininn. Bein útsending frá jarðhitasvæði í vegstæði á Hellisheiði má sjá á skjánum. ↓ Þversnið af hinum fullkomna vegi.

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.