Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 23.10.2023, Blaðsíða 18

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 23.10.2023, Blaðsíða 18
18 Framkvæmdafréttir nr. 727 5. tbl. 31. árg. Byggðu bráðabirgðabrýr á methraða Á undanförnum áratugum hefur starf brúarvinnuflokka Vegagerðarinnar einkum vakið athygli þegar þurft hefur að bregðast hratt við og reisa bráðabirgðabrýr eftir að flóð hafa skemmt eða hrifið á brott þær brýr sem fyrir voru. Samfélagið allt hefur í æ ríkari mæli reitt sig á að umferðin geti gengið snuðrulaust fyrir sig á helstu þjóðvegum landsins allt árið um kring. Vinnusókn utan heimilis, dagleg skólasókn innan héraðs og utan, ferðir til að sækja verslun og þjónustu, vaxandi umferð ferðamanna og fleira mætti telja til þar sem vegfarendur treysta á að komast hindrunarlaust á milli staða. Kröfur hafa því til dæmis vaxið mjög um aukna vetrarþjónustu og bætta upplýsingagjöf um ástand vegakerfisins á hverjum tíma. Þegar rof verður á þessu nauðsynlega flæði umferðarinnar, eins og þegar skörð koma í vegi eða skemmdir verða á brúm, eru skiljanlega uppi kröfur um að allt verði gert til að koma sambandi á aftur sem allra fyrst. Hér verða rifjuð upp þrjú dæmi sem margir muna eftir þar sem aðkoma og viðbragð brúarvinnuflokka áttu stóran þátt í að lágmarka skaðann af rofi á vegasamgöngum eftir hamfaraflóð í ám. Flóðin urðu í þessum þremur vatnsföllum: → Gígjukvísl á Skeiðarársandi 1996 → Múlakvísl á Mýrdalssandi 2011 → Steinavötn í Suðursveit 2017 Gígjukvísl á Skeiðarársandi 1996 Hringvegurinn á Skeiðarársandi var opnaður árið 1974 og þar voru þrjár stórbrýr, á Súlu, Gígjukvísl og Skeiðará. Það var vel þekkt að stór jökulhlaup höfðu oft komið í þessar ár, einkum Skeiðará. Þau stærstu tengdust eldgosum undir Vatnajökli, oftast í Grímsvötnum. Síðasta stóra hlaupið hafði orðið 1938. Við hönnun á brúnum var ekki miðað við að þær gætu staðist þessi stóru hlaup, heldur miðaðist hönnunin við að flóðvatnið rynni sem mest út úr hefðbundnum farvegum og fram hjá brúnum, og skemmdir yrðu þá einkum á vegum og varnargörðum, en minni á brúnum sjálfum. Og það var vitað að brúin á Gígjukvísl var í mestri hættu þar eð farvegurinn ofan hennar var mun dýpri en við hinar árnar og því minni líkur á að flóðvatn rynni út á sléttlendi utan farvegarins, hvort sem var af náttúrulegum ástæðum eða með stýringu rennslisins með varnargörðum. Í október 1996 hófst eldgos undir Vatnajökli sunnan við Bárðarbungu og það var strax ljóst að búast mætti við mjög stóru hlaupi. Hlaupið kom hins vegar ekki fram undan jöklinum fyrr en mánuði síðar, eða 5. nóvember. Á fyrstu klukkutímunum sópaðist brúin á Gígjukvísl burt, en hún var 330 metra löng. Eins fóru 170 metrar af brúnni yfir Skeiðará sem var 904 metrar á lengd fyrir hlaup, auk þess sem einn stöpull gaf sig án þess þó að brúin félli niður. Einnig urðu umtalsverðar skemmdir á vegum og varnargörðum. Það var í byrjun reiknað með að það gæti tekið tvö ár að byggja nýja brú á Gígjukvísl og lagfæra aðrar skemmdir. Augljóslega var ekki hægt að búa við rof á vegasamgöngum um Hringveginn til svo langs tíma. Það var því strax ákveðið að koma upp bráðabirgðabrú hið fyrsta, og brúarvinnuflokkarnir kallaðir til. Þeir reistu 160 metra langa brú úr stálbitum og með trégólfi, sem hvíldi á 10 metra löngum tréstaurum sem voru reknir niður í aurinn. Umferð var síðan hleypt á brúna 17 dögum eftir að hlaupið kom fram á sandinn. Brúarsmiðirnir þurftu einnig að gera við skemmdir á Skeiðarárbrú, meðal annars að steypa nýjan millistöpul í stað þess sem hvarf í flauminn og og „tjakka“ upp brúna sem þar hafði sigið töluvert. Ný brú var síðan byggð á Gígjukvísl af verktakafyrirtækinu ÍAV og hún opnuð fyrir umferð tæpum tveimur árum eftir hlaupið. Á myndinni sést bráðabirgðabrúin í baksýn nýrrar brúar. Skeiðarárjökull Skaftafell Lómagnúpur Öræfa- jökull Gígjukvísl Mýrdalsjökull Kötlujökull VíkDyrhólaey Hafursey Álftaver Múlakvísl Breiðamerkur- jökull i j ll Jökulsárlón Sauðdalstindur Kálfafellsdalur Öræfa- jökull Steinavötn

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.