Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 23.10.2023, Qupperneq 11

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 23.10.2023, Qupperneq 11
Framkvæmdafréttir nr. 727 5. tbl. 31. árg. 11 „Sundabraut er eitthvert stærsta einstaka samgönguverkefni sem við höfum tekist á hendur og þar eru bæði miklir hagsmunir og fjármunir í húfi. Þótt við höfum lagt áherslu á að kynna fyrirhugaðar framkvæmdir vel í nærumhverfinu og á þeim svæðum sem verða fyrir hvað mestum áhrifum af Sundabraut má segja að framkvæmdin varði alla landsmenn, enda góðar tengingar við og innan höfuðborgarsvæðisins allra hagur. Þess vegna höfum við reynt að vekja sem mesta athygli á verkefninu og lagt okkur fram um að draga fram sem flest sjónarmið í umhverfismatsferlinu,“ segir Helga Jóna, en matsáætlunin er í raun verklýsing fyrir yfirstandandi og komandi umhverfismatsferli. „Í matsáætlun er gerð grein fyrir þeim valkostum sem eru til skoðunar og fjallað um þá umhverfisþætti sem stendur til að meta. Það er ekki hægt að útiloka að okkur hafi yfirsést einhverjir valkostir eða umhverfisþættir sem vert er að taka til skoðunar í ferlinu. Þess vegna höfum við hvatt íbúa, hagaðila og aðra áhugasama til að skila inn umsögnum um matsáætlunina,“ greinir Helga Jóna frá. En hver skyldu svo næstu skref í þessu ferli vera? „Umhverfismatsferlið heldur áfram og við bindum vonir við að það klárist næsta sumar. Vinna við frumhönnun veglínu og helstu mannvirkja stendur yfir og ætti að ljúka í kringum áramót. Sama máli gegnir um gerð viðskiptaáætlunar fyrir verkefnið. Í nóvember og desember ætlum við að ráðast í rannsóknarboranir í fyrirhuguðu vegstæði, bæði á landi og í sjó. Á einhverjum tímapunkti þarf síðan að velja á milli þeirra valkosta sem koma til greina þannig að við getum hafið útboðsferli samvinnuverkefnisins næsta haust,“ upplýsir Helga Jóna. Sundabraut er búin að vera í umræðunni síðan 1975 eða svo. Er mikið til af gögnum sem hægt er nota í þessu ferli sem nú stendur yfir? „Við græðum heilmikið á fyrri vinnu við frumdrög og mat á umhverfisáhrifum. Þar er búið að skerpa á valkostum og umhverfisþáttum, útiloka sumt og opna á annað. Það styrkir líka stöðu verkefnisins að Sundabraut hafi verið á aðalskipulagi Reykjavíkur um áratuga skeið. Áður en við byrjum að framkvæma þurfum við eftir sem áður að klára útboðsferli, for- og verkhönnun, deiliskipulagsvinnu og fá öll tilskilin leyfi. Ekkert af þessu verður hrist fram úr erminni enda afar mikilvægt að vanda til verka þegar svo umfangsmikil framkvæmd er annars vegar,“ segir Helga Jóna að lokum.

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.