Úrval - 01.10.1968, Síða 11
UM SIÐASKIPTIN
9
að fylgja trú landsdrottins síns. Ný
ofstjórn var sköpuð á kostnað
hinnar gömlu.
Nú í dag virðist bilið milli hins
gamla siðar og hins nýja vera að
minnka, en erfitt er að átta sig á,
hvor aðili leggi meira að sér í þeim
málum. Það er spurning, hvort hér
sé ekki blátt áfram um breytumerki
að ræða. Það er spurning, hvort hin
mikla kirkja sé ekki á villigötum
á nýjan leik; spurning, hvort hún
tali til fjöldans eins og Lúther
gerði; spurning, hvort hún tali á
því máli, sem fjöldinn skilur?
En það hlýtur að vera hverjum
háskóla ljúft að minnast hins forna
boðs Lúthers til rökræðna, því þar
kom fram hið akademíska frelsi,
sem oss ber að standa vörð um.
Frelsið til að kenna samkvæmt
sannfæringu og samvizku.
Við tölum um að drepa tímann, eins og það væri ekki tíminn, sem
drepur okkur.... því miður.
Alphonse Allais.
í Rhode Islandfylki sannfærði mæiskur vátryggingasali nágranna
sinn um, að hinn grimmdarlegi hundur, sem hann ætti, væri næg
ástæða til þess, að hann ætti að kaupa sér háa ábyrgðartryggingu. Ná-
granninn var varla búinn að skrifa nafn sitt undir skírteinið, þegar
hundurinn stökk á vátryggingasaiann og beit hann.
The Illustr. Weekly of Inctia.
Útvarpsstöðin CHTK í Prince Rubert í Brezka Columbíufylki í
Kanada var nýbúin að útvarpa þætti, sem hlustendur geta tekið þátt
í i gegnum síma. Og einmitt þá kom geysileg elding niður í sendi-
stöðinni, og það heyrðist ekkert í stöðinni í 12 tíma. Eitt af umræðu-
efnum þáttarins var: „Er guð dáinn?“
CJCA, Edmonton, Alta.
Sem meðlimur í deild K9 í lögregluliði Philadelphiu var ég eitt sinn
settur til þess að haía eftirlit á neðanjarðarstöðvum og í lestunum
til þess að draga úr glæpaverkum og sýna borgurunum, að bætt hefði
verið við lögreglulið borgarinnar.
Eitt sinn var ég á verði á neðanjarðarstöð, þar sem margt var um
manninn, stanzaði ég sem snöggvast við kaffibar þar niðri til þess
að fá mér kaffibolla. Ég hafði skipað varðhundinum mínum að leggj-
ast við fætur mér, og ég var að drekka kaffið mitt, þegar lágvaxin,
gömul kona gekk til mín. Hún var með smápening í útréttri hend-
inni og sagði: „Guð blessi þig. Ég hef aldrei séð blindan lögreglu-
þjón fyrr.“ Og að svo mæltu lét hún 10 centa pening detta ofan í
tóman bollann minn.
Larry W. B. Funderbuck.