Úrval - 01.10.1968, Page 13
MUSTERI OG GEIMSKIP
11
Hugleiðingar þær, sem
ég set hér fram, eru
fram komnar fyrir 40
árum, og voru þá. settar
fram af Nikolai Rynin,
en hann lagði grundvöll að smíði
geimskipa og geimflugi nútímans.
Rynin benti á það að í goðafræði
ýmissa þjóða finnist sögur um gest-
kemu vi(i gæddra vera utan úr
geimi. Árið 1959 tók annar rúss-
neskur vísindamaður, Modest Agr-
est, þetta til rækilegrar athugunar.
Svo segir dr. Iosif Shklovsky, fé-
lagi í sovézku vísindaakademíunni:
„Agrest heldur því hiklaust fram
að ýmsar írásagnir í biblíunni séu
af komu geimfara frá öðrum hnött-
um hingað til jarðarinnar . . . Sum-
arið 1962 vd,r samskonar tilgáta
höfð eftir Karli Sagan, en hann er
þekktur bandarískur stjörnufræð-
ingur. Að svo komnu máli er ekki
unnt að segja, að þessir tveir menn
hafi fært á þetta nokkra óvefengj-
anlega sönnun. Samt er þetta allra
athygli vert og ekki ástæða til að
álíta það einskisverðan þvæting.
Setjum svo að hingað hafi komið
verur frá öðrum hnetti og gert vart
við sig meðal manna. Öllum mundi
hafa virzt þær skara langt fram úr
og tileinkað þeim dularfullt, guð-
dómlegt vald og mátt.
Setjum svo að þessir „guðir“ hafi
stigið út úr geimskipi — þá mætti
ætla að þeir sem sáu það, hafi vilj-
að reyna að líkja eftir því, reist sér
musteri lík því að lögun, enda virð-
ist svo sem þess megi víða finna
vott.
Setjum svo að „vélin“ hafi í raun-
inni verið lendingartæki „guðanna“
á síðasta áfanga þeirra til jarðar-
innar. Ekki væri þá ósennilegt að
myndir af „guðum“ þessum væru
fyrirmynd flestra þeirra skurðgoða,
sem sjá má víða um heim i muster-
um.
Setjum svo að vél með ,,guðum“
innanborðs hafi komið af himni og
farið svo aftur. Er þarna að finna
skýringuna á því hversvegna öll
musteri benda upp á við, bæði að
lögun og anda?
VAR DAVÍÐ ÞÁ OFURMENNI
X^MTÐ AF HIMNI?
í apókrýfísku ritunum er getið
um Davíð konung og sagt að hann
hafi horfið til himins, og að englar
hafi sýnt honum „ímynd kirkju“
og hafi hann haft mynd þessa að
fyrirmynd musterisins í Jerúsalem.
Þegar Davíð kom úr ferð þess-
ari á hann að hafa skipað Salómon
syni sínum svo fyrir, að hann skvldi
láta gera eftirmynd svo nákvæma
sem orðið gæti af húsi þessu. Ekki
hafði Davíð annað við að stvðiast
en endurminninguna um húsið, en
hún var þá ný og fersk. Musteri
þetta, hið fræga musteri Davíðs
konungs í Jerúsalem, var reist á
tíundu öld f. Kr., og hefur ætíð
verið álitið, að þessi hafi verið til-
drögin að gerð þess.
Þá vaknar sú spurnig hvort þessi
„ímynd kirkju“ hafi ekki einmitt
verið mynd af geimskipi. Ef til vill
hefur einhverjum manni verið boð-
ið inn í þessa himnavél, og verið
sýndar myndir af „dvalarstað guðs“.
Ef litið er til textans í ýmsum
öðrum bókum, einkum apókrýfisku
ritunum, fer þetta að vera enn trú-