Úrval - 01.10.1968, Side 14
12
ÚRVAL
legra. Sumt af því er tilfært í jan-
úarhefti Sputniks, 1967.
Hindúar trúa því einnig að must-
eri þeirra séu eftirmynd mustera í
öðrum heimum. f ritum þeirra seg-
ir að fyrirsögn um gerð mustera
þeirra sé komin frá guðunum, og
hafi prestar veitt þessu viðtöku.
Enn hafa ekki verið gerðar nein-
ar tæmandi athuganir á líkinga-
fræði hinna nýju mustera Brahma-
trúarmanna í Indlandi," segir Niko-
lai Brunov í bók sinni Ritgerðir um
sögu byggingarlistar. Arkitektar eru
gæzlumenn óskrifaðrar sögu, og
vandleg athugun á þeirri sögu er
líkleg til að varpa nýju ljósi á lík-
ingafræði þá sem falin er í hinum
miklu musterum Brahmatrúar-
manna.
Ritgerðir Brunovs voru gefnar út
árið 1937. En á þessum dögum geim-
siglinga má skoða bók þessa í nýju
Ijósi. f ítamajana er getið um
himneskan vagn“ í tveimur hæðum,
og mörg herbergi á hvorri og glugg-
ar. Hann „öskraði eins og ljón“ þeg-
ar hann lenti, en þegar hann fór
gaf hann frá sér stakan, stöðugan
tón og hann „brann rauðum loga“
meðan hann fjarlægðist, og að síð-
ustu sást hann á lofti „eins og hala-
stjarna".
í FORNINDVERSKUM BÓKUM
Samkvæmt öðru fornriti ind-
versku, Mahabharata var vagninn
„knúinn vængjuðum blossa", og í
riti því fornindversku, sem heitir
Samarangana Sutrahara, og ritað er
á sanskrít, eru 230 erindi, sem ein-
göngu segja frá þessu flugtæki, sem
í Vedabókum er kallað „vimana“.
í handriti nokkru fornindversku
er svo sagt að „skip þetta hafi þotið
í loft upp, til sólar og síðan lengra,
alla leið til stjarnanna.“
í þessum indversku ritum er
miklu skýrara sagt frá en í ritum
Gyðinga og kristinna manna, líking-
in með geimskipi er þarna ótvíræð.
En er þá nokkur hæfa fyrir því að
þessir „himnesku vagnar“ hafi orð-
ið fyrirmynd að gerð kirkna og
mustera?
A miðöldum þegar Brahmatrú
kom aftur og ruddi burt Búddha-
trú í Indlandi, voru byggð musteri
á hjólum. Brunov færir fram mörg
dæmi því til sönnunar, að samband
sé milli þessa byggingarlags must-
eranna og frásagnanna af hinum
„himnesku vögnum“ (vimans).
„DULARFULL“ FYRIRBÆRI
Þá vaknar sú spurning: hve mikil
er sú líking?
Þessi spurning mætti virðast út
í hött, fyrst við vitum ekkert um
útlit þessarra geimskipa, sem raun-
ar er ósannað mál, að nokkru sinni
hafi komið. En gerð geimskipa nú-
tímans gefur til kynna, að þau hafi
hlotið að vera í tveimur pörtum.
Hinn stærri hlutinn mundi þá
hafa verið ætlaður til að fljúga í
um geimdjúpið milli stjarnanna, hið
lofttóma rúm þessarra reginfirna.
Ekki þýðir að reyna að ímynda sér
hvernig sá hlutinn hafi verið í lög-
un. En hinn parturinn mundi hafa
verið ætlaður til flugs um styttri
vegalengdir, t.d. í grennd við jörð-
ina, og til flugs um lofthvolf jarð-
arinnar milli meginlanda.
Geimskipinu mundi hafa verið