Úrval - 01.10.1968, Page 21
MUSTERI OG GEIMSKIP
19
miðhluti kirkju (að innan) navis,
skip.
Þannig ber allt að sama brunni,
bæði hjá kristnum og Gyðingum,
Búddhatrúarmönnum og Brahma-
trúar, guðshús þeirra allra eru gerð
í samræmi við það „himneska must-
eri“, sem nákvæmust eftirlíking var
af í turnum kirkna og hvelfingum.
55 ALDIR
Hér er merkilegs atriðis að gæta:
Persía, Assyría, Fönikia og Júdea,
þessi lönd öll umkringdu Mesópóta-
míu og Egyptaland, en í þessum síð-
asttöldu löndum má ætla að vagga
byggingarlistar hafi staðið.
í syðri hluta Mesópótamíu reis
ríki Súmera endur fyrir löngu, og
er þetta ríki eitt hið elzta, sem sög-
ur fara af. Þarna þróaðist menning
á örskömmum tíma úr fullkominni
villimennsku og kyrrstöðu, og bar
blóma í vísindum (stjörnufræði og
stærðfræði), tækni (vatnsveitur) og
skipulagi borga.
Það var bandarískur stjörnufræð-
ingur, Karl Sagan, sem tók fyrstur
manna eftir þessu. Og tók hann sig
til og fór að leita í súmerskum rit-
um að lýsingum á furðulegum ver-
um, sem eiga samkvæmt trú þeirra
að hafa sézt á Persaflóa og komið
þaðan til að kenna þjóðinni undir-
stöðuatriði vísinda og ýmissa hand-
iðna og lista.
Ef til vill hafa þetta verið verur
utan úr geimi, sem lent hafa á
sjó, eins og bandarísk geimskip gera
nú sem stendur.
„Þessir atburðir,“ segir dr. Shklov-
sky, félagi í rússnesku vísindaaka-
demíunni, „kunna að hafa gerzt í
borg þeirri sumerskri, sem hét Her-
idu og h.u.b. 35 öldum f.Kr.
Ef til vill er hér um hið sama að
ræða sem síðar er í indverskum
fornritum nefnt „vagn sem líður í
lofti" og hið „himneska musteri“ í
fornritum Gyðinga.
ÝMSAR MYNDIR, SAMI
UPPRUNI
Kirkjur kristinna manna, pagóðar
og moskur, eiga það sameiginlegt,
að allar línur benda upp á við. Qg
þó að samkomuhús Gyðinga, syna-
gógurnar, séu ekki háreist og einnig
musteri Grikkja og Rómverja, bend-
ir þó sitthvað hjá þeim upp á við.
Samkomuhús Gyðinga eru eftir-
líking af musteri Salómons, sem
fyrst var gert úr timbri, og síðar úr
steini, en af líkri gerð. En þegar
musteri þetta var fyrst reist, var
byggingarlist í bernsku móts við
það sem síðar varð, og kunni þá
enginn að byggja há hús. En þegar
byggingarlist hafði þróazt vel, og
betri efni höfð, og betri aðferðir,
breyttist stíllinn ekki neitt að ráði
um langan tíma.
Hvað snertir Gyðinga, þá er auð-
séð að þar varð skjót breyting á
guðshúsum þeirra, en stúpur Ind-
verja og moskur Múhameðstrúar-
manna fullkomnuðust með bættum
aðferðum og eftir að farið var að
nota varanlegt efni svo sem stein-
steypu, brenndan leir o.fl.
KOMA ÞEIR AFTUR?
Með öllum hinum meiri háttar
trúarbrögðum, sem hafa alið með
sér kenninguna um komu messíasar,
eða endurlausnara, hafa tíðkast