Úrval - 01.10.1968, Qupperneq 29
FEGURÐ í TONNATALI
27
fyrir 3 árum með aðeins 3000 doll-
ara fjármagni og aðeins eina vöru-
tegund, sem bar heitið „Oil of the
Turtle moisturizer lotion" (raka-
aukandi skjaldbökuolíusmyrsl). Nú
hefur hún fært út kvíarnar og sel-
ur 8 tegundir í 100 fyrsta flokks
verzlunum fyrir hálfa þriðju millj-
ón dollara á ári.
Það er geysileg samkeppni í
snyrtivöruiðnaðinum, því að þar er
allt sífelldum breytingum undir-
orpið, eftir því hvernig tízkan
breytist sífellt. Og snyrtivöruiðnað-
urinn getur ekki skipað fyrir um
það, hvernig þróunin skuli verða
og hverjar breytingar skuli koma
næst. Samkvæmt athugun einni,
sem gerð var, voru taldar 1200 nýj-
ar vörutegundir á 5 ára tímabili í
snyrtivöruiðnaðinum, og þar af
lognuðust 1000 út af. Hið eina, sem
snyrtivöruframleiðendurnir geta
gert í þessu efni, er að koma fram
með nýjungar upp á von og óvon
og sjá þær þjóta eftir síðum tízku-
blaðanna „Vogue“ og „Harper's
Bazaar“. Bókstaflega hvaða nýjung
sem er gæti hitt í mark, svo að það
eru varla nokkur takmörk fyrir
því, hvað reynt er að koma fram
með, t. d. dapurleg, svört trúðatár
á bókstaflega snjóhvítu andliti,
fjaðrir í augabrúnum, leppa með
kinnalit eða augnskugga til álím-
ingar.
Og breytingarnar eru oft smáar
í sniðum, hvað eiginleika varanna
snertir, t. d. varalitur, sem er ör-
lítið gagnsærri en fyrri litir, krem,
sem ætlað er til nýrrar notkunar
eða til þess að reyna að breyta
smekk almennings og koma af stað
nýrri tízkudellu. Og auðvitað er um
að ræða hráefni með einhvern
„töframátt", svo sem drottningar-
hunang 6. áratugs aldarinnar, hina
dýrðlegu fæðu býflugnadrottning-
arinnar, en gefið var í skyn, að efni
þetta gerði konur hraustari, lang-
lífari og fegurri. Svo kom fram
krem með hráefni í, sem „unnið
var úr hinu dýrmæta frjói brönu-
grassins (orkideunnar), og púður,
sem „inniheldur raunverulega
muldar perlur". Allar hafa þessar
vörutegundir tvennt sameiginlegt,
líkt og skjaldbökuolían, hákarla-
olían og minkaolían. Allt eru þetta
efni, sem fást við vinnslu í öðrum
iðngreinum, og engin þeirra hefur
nein töfraáhrif, svo að greint verði.*
Og svo er það eitt atriði enn: hátt
verð. Það er staðreynd, að verð
hverrar snyrtivöru ákvarðast mjög
lítið af raunverulegum framleiðslu-
kostnaði hennar. Hráefnin í vara-
lit, sem kostar 1 dollara og 70 cent,
kosta frá 3—6 cent. Sama er að
segja um varalit, sem kostar 3 doll-
ara og S0 cent. Hráefnin eru hin
sömu, að undanskildu ilmefninu
og hinni sérstöku litablöndu hverju
sinni. Kænir snyrtivöruframleið-
endur reyna alls ekki að lækka
verðið, heldur reyna þeir mikið til
þess að eiga tilkall til að geta kall-
ast framleiðendur dýrustu snyrti-
varanna. Ein fyrsta vörutegund
* Til eru hormónakrem og steroid-
efnablöndur, sem hafa áhrif á
frumur mannslíkamans. En efni
þessi eru flokkuð sem lyf og eru
háð leyfis- og merkingarákvæðum
Matvæla- og lyfjaeftirlit.sins.