Úrval - 01.10.1968, Síða 33
GERTRUDE RAMEY
31
vöru 16 ungbörn og smábörn upp
að skólaaldri, 28 voru í barnaskóla,
8 í gagnfræðaskóla og 2 í mennta-
skóla.
BÖRN Á VILLIGÖTUM
Gertrude Ramey hafði sjálf átt
erfiða bernsku. Hún átti mörg syst-
kin. Fjölskyldan bjó í sögunar-
mylluþorpinu Salt Lick í Kentucky-
fylki. Hún var aðeins 9 ára gömul,
þegar móðir hennar, eldri bróðir og
systir dóu öll í inflúensufaraldri.
Það var Gertrude, sem gerðist stoð
og stytta fjölskyldunnar og hélt
henni saman. Síðan vann hún hvaða
störf, sem til féllu, og hjálpaði til
þess að sjá fyrir sjúkum föður sín-
um og kosta yngri bróður og systur
í menntaskóla.
Hún var orðin 25 ára, þegar hún
fluttist til Catlettsburg í Kentucky-
fylki árið 1940, stálbræðslu- og olíu-
hreinsunarbæjar í miklum uppgangi
rétt fyrir ofan bæinn Ashland við
Ohioána. Hún opnaði þar matsölu-
og gistihús fyrir vearkafólk, sem
vann í ýmsum greinum, sem nauð-
synlegar voru stríðsrekstrinum.
Reksturinn gekk vel hjá henni, en
hún var samt eirðarlaus. Eftir árás-
ina á Pearl Harbor, er Bandaríkin
hófu þátttöku sína í styrjöldinni,
fór Gertrude að hafa sífellt meiri
áhyggjur af öllum börnunum, sem
hún sá lenda á villigötum þar í bæ.
Þar var um að ræða umhirðulaus
börn starfsfólks í hergagnaiðnaðin-
um, börn hermanna, sem sendir
höfðu verið til herbúða og víg-
stöðva, og mæðra, sem höfðu sleppt
fram af sér beizlinu. Þau æddu um
betlandi og stelandi og sváfu á bíla-
stæðum eða í húsbátsræflum á ánni.
Lögregluþjónarnir handtóku Öðru
hverju hópa af þessum ringluðu
börnum og fóru með þau í hrepps-
dómshúsið handan torgsins, er mat-
söluhús Gertrude stóð við. Hún
fylltist hryllingi, er hún frétti að
það væri ekki til neinn staður í
bænum, þar sem hægt væri að
skjóta skjólshúsi yfir þau um stund-
arsakir, nema þá hegningarhúsið
eða fátækrahæli hreppsins, niður-
níddur og fúll kumbaldi.
Dag einn gekk hún yfir í dóms-
húsið og bauðst til bess að taka að
sér nokkur af þessum börnum „að-
eins í nokkra daga, þangað til þið
hafið ákveðið, hvað eigi að gera af
þeim.“ í janúarmánuði 1943, nokkr-
um nóttum síðar, skaut Gertrude
skjólshúsi yfir Greersystkinin, sem
foreldrarnir höfðu yfirgefið. Menn
úr fylkislögreglunni höfðu komið
að þeim, þar sem þau húktu skjálf-
andi í kringum varðeld úti í skógi.
Þar var Ted, 8 ára, Jody, 5 ára, og
ársgömul systir þeirra, Jo Ann, sem
var með lungnabólgu á byrjunar-
stigi. Gertrude sendi fyrst eftir
lækni handa veiku telpunni. Síðan
skrúbbaði hún drengina hátt og lágt,
greiddi þeim og aflúsaði hárstrý
þeirra, gaf þeim heitan kvöldmat
að borða og bjó síðan um þá af
ástríkri umhyggju. Hún var ánægð-
ari en hún hafði verið árum saman.
DAGLEGT BRAUÐ
Greersystkinin voru enn hjá Ger-
trude í árslok. Og þar að auki hafði
hún skotið skjólshúsi yfir 7 önnur
börn til bráðabirgða. Hún hélt á
fund Roberts A. McCulloughs,