Úrval - 01.10.1968, Side 34
32
ÚRVAL
blaðamanns (nú ritstjóra) við dag-
blaðið Daily Independent í Ashland
og bar l|ram þessa einkennilegu
uppástungu: „Mig langar til þess að
reka heimili fyrir heimilislaus börn.
Ef fólk hér um slóðir vill leggja
fram fé fyrir fæði og fatnaði handa
börnunum, skal þjónusta mín ekki
kosta neitt.“ Hann bar fram ýmsar
mótbárur, sem grundvölluðust á
hagsýnisjónaSrmiði, en þá svaraði
hún með uppáhaldsorðum sínum:
,,Þú skalt viðurkenna Hann í allri
breytni þinni, og Hann mun vísa
þér veginn.“ Síðan bætti fjallastúlk-
an við lágri, rórri röddu: „Sko, sæi
maður, hvað er handan næstu
beygju, væri ekki um neinn veg
að ræða. Hvers vegna hefjumst við
ekki handa og' treystum á, að allt
fari vel.“
McCullough hjálpaði henni til
þess að skipuleggja starfsemina, og
í ársbyrjun 1944 var Rameybarna-
heimilið opnað með samþykki ung-
lingadómstólsins. TryggSar tekjur
(aðallega frá bæ og hrepp) eru enn
aðeins 3900 dollarar á ári. Það þarf
23.000 dollara árlega þessu til við-
bótar til þess að reka heimilið (auk
myndarlegra gjafa í vörum og þjón-
ustu frá kaupmönnum og læknum
bæjarins). Oft skuldar barnaheim-
ilið hennar mörg þúsund dollara.
En um jólaleytið ár hvert streyma
framlög og gjafir að úr öllum átt-
um, og skuldirnar þurrkast út.
Gertrude er enginn dýrlingur.
Hún sýnir oft mikla kænsku við að
fá sem mest og bezt börnum sínum
til handa. Eitt sinn vantaði hana
rúmdýnur, og þá bjó hún um nokk-
ur börn á krossviðarplötum, sem
teppi höfðu verið breidd á. En hún
sá fyrir því, að presturinn henn-
ar (og söfnuður hans) fengi að
heyra um aðbúnað þann, sem börn-
in yrðu að sætta sig við. Og að
nokkrum dögum liðnum hafði
barnaheimilið meira en nóg af rúm-
dýnum. Mom Ramey, eins og hún
er kölluð, vantar aldrei kænsku á
þessu sviði. Henni hefur tekizt með
ýmsum ráðum að fá allt mögulegt
handa börnunum sínum, allt frá
píanói og gítar til dýragirðingar með
þrem hestum, þrem hundum og
þrem öndum, sem umkringd er
hvítri rimlagirðingu.
Nú býr „Rameyfjölskyldan" í
stóra múrsteinshúsinu, sem var eitt
sinn fátækrahæli hreppsins. f því
eru 35 svefnherbergi og 6 böð. Ger-
erude tók húsið á leigu frá hreppn-
um árið 1958 fyrir 1 dollara á
ári, þegar átti að rífa það. Það
þurfti geysilegt átak til þess að
hreinsa það hátt og lágt og lagfæra
á ýmsan hátt. Og það verk vann
hún að mestu leyti sjálf. Mörg barn-
anna hjálpuðu að vísu til þess að
mála og skreyta herbergi sín.
„HANN ER PÖRUPILTUR! “
Mom Ramey gengur furðu vel að
eiga við börnin og unglingana, sem
hjá henni dvelja. Eitt leynivopnið
er hæfileiki hennar til þess að fá
þau öll til þess að vinna saman. Þau,
sem eru orðin nógu gömul til slíks,
búa um rúmin sín og hreinsa til í
herbergi sínu. „Guð sér fyrir fugl-
inum,“ segir Mom Ramey við þau,
„en hann byggir ekki hreiðrið fyr-
ir hann.“ Drengirnir hjálpa til í
matjurtagarðinum, eldri stúlkurnar