Úrval - 01.10.1968, Síða 37
GERTRUDE RAMEY
35
verið illa með. Sem dæmi mætti
taka baráttu hennar fyrir rétti
Florrie. Florrie var 15 ára gömul,
þegar yfirvöldin fréttu af því, að
henni væri haldið sem fanga á býli
fjölskyldunnar uppi í fjallahéruð-
unum. Móðir telpunnar hafði alltaf
lokað hana inni og aldrei leyft
henni að ganga í skóla. Florrie leit
fremur út sem villidýr en unglings-
stúlka, þegar yfirvöldin sóttu hana
og færðu Gertrude. Það var komið
fram að páskum, og Gertrude flýtti
sér út og keypti fyrstu snotru fötin,
sem Florrie hafði eignazt. Það var
fallegur vorfatnaður.
Mom Ramey brást reið við, þegar
opinberir embættismenn stungu upp
á því að setja Florrie á stofnun fyrir
vangefna. „Mér fannst satt að segja,
að Florrie hafi nú þegar verið nægi-
lega mikið vanhaldin, án þess að
hún eigi nokkra sök á því sjálf!“
sagði Gertrude ákveðin. Hún gat
talið embættismennina á að leyfa
þessari ólæsu stúlku að ganga í
venjulegan barna- og gagnfræða-
skóla. Florrie reyndist óvenjulega
gáfuð og lauk öllum 12 bekkjunum
á 4 árum og útskrifaðist með ágæt-
iseinkunn úr gagnfræðaskólanum!
Ári seinna giftist Florrie, og kom
Gertrude þá fram í hlutverki móð-
ur brúðarinnar. Nú býr Florrie í
hamingjusömu hjónabandi með
kaupsýslumanni, sem á mikilli vel-
gengni að fagna.
Öðru sinni háði Gertrude styrj-
öld við Innflytjendaþjónustuna, sem
var að reyna að fá úrskurð um, að
vísa skyldi einu barna hennar úr
landi. Þar var um að ræða 12 ára
mexíkanska stúlku, sem hafði aug-
sýnilega verið komið með inn í
Bandaríkin á ólöglegan hátt og síð-
an yfirgefin þar. Að síðustu skaut
Gertrude máli sínu til Hvíta húss-
ins, og hún vann ekki aðeins stríð
sitt, heldur fékk hún sérstakt heim-
boð frá Eisenhower forseta og for-
setafrúnni, sem buðu henni í heim-
sókn til Hvíta hússins. Hún valdi 5
börn til fararinnar. Þau bjuggu til
sælgæti og seldu það með hjálp
hennar til þess að standa straum af
ferðakostnaðinum. Og svo hélt hún
til Washington með börnin. Á
stjórnarárum Kennedys forseta var
Gertrude auðsýndur sami heiður-
inn, og Johnson forseti gerði einnig
slíkt hið sama, þegar hann frétti,
að hún veitti mannréttindabarátt-
unni stuðning með því að ganga
börnum af fjórum ólíkum kynþátt-
um í móður stað. Þar var um að
ræða 4 börn, eitt hvítt, eitt kín-
verskt, eitt svart og eitt af Indíána-
ættum.
GREITT AÐ FULLU
Barnaverndaryfirvöld fylkisins
vildu gjarnan, að barnaheimili Ger-
trude hefði fullkomnari útbúnað og
menntað starfslið til þess að sinna
börnunum persónulega. (Nú er að-
eins um að ræða einn starfsmann
sem vinnur heilsdagsvinnu á barna-
heimilinu án þess að taka nokkur
laun). En flest fólk þar um slóðir
er sammála McCullough ritstjóra,
sem hefur þetta að segja um starf-
semina: „Það, sem gerir Ramey-
barnaheimilið að slíkum fyrirmynd-
arstað, er sá algeri skortur, sem
ríkir þar á viðhorfi því, sem ein-
kennir opinberar stofnanir. Við álít-