Úrval - 01.10.1968, Side 61
BYRON LÁVARÐUR OG GUICCIOLI GREIFYNJA
59
„Byron lávarður,“ var hvíslað í
eyra henni.
Og áður en hún vissi af, var ein-
hver farinn að kynna- hana fyrir
honum: „ . . . Guiccioli greyfynja.“
„Nei,“ hljómaði svar lávarðarins,
„ég get ekki þekkt hana. ... Til
þess er hún alltof falleg!“
En þegar þau skildu síðar um
kvöldið, hripaði Byron lávarður
nokkur orð á miða og stakk honum
í lófa hennar. Og upp frá því kvöldi
hittust þau á hverjum degi þessar
tvær stuttu vikur, sem hún dvaldi
í Feneyjum.
I augum Teresu Guissioli, hinnar
17 ára gömlu greifynju, var sem
sjálf forsjónin hefði skipulagt þenn-
an fyrsta fund þeirra í veizlunni.
Og það var sem henni hefði skyndi-
lega verið sveiflað upp fyrir skýin.
Hún hafði eytt mestum hluta ævi
sinnar, allt til 15 ára aldurs, í
klaustri, þar sem klaustursysturnar
höfðu vakað yfir hverju fótmáli
hennar. Og 16 ára að aldri hafði hún
verið gift hinum auðuga Guiccioli
greifa, sem var rúmlega sextugur
eða með öðrum orðum jafnvel eldri
en hennar eigin faðir. Henni höfðu
því veitzt fá tækifæri til þess að
kynnast þeim unaðslegu hjarta-
kvölum, sem ganga undir nafninu
ÁST. Og núna, sautján ára að aldri,
gaf hún upp alla vörn og gafst hin-
um ómótstæðilega Byron lávarði
skilyrðislaust.
í augum Byrons lávarðar, sem
var orðinn þreyttur og leiður á
taumlausu nautnalífi, var þetta eins
konar hvíld, velkomin hvíld. Feg-
urð hinnar kornungu Teresu töfr-
aði hann algerlega. Seinna skrifaði
hann vini sínum á þessa leið: „Hún
er mjög falleg, mjög ljóshærð og
ljós yfirlitum, en slíkt er mjög
óvenjulegt á ítalíu. Samt er þetta
ekki hið enska, ljósa yfirbragð, held-
ur líkara sænsku eða norsku. Vaxt-
arlag hennar er líka óvenjulega
gott, einkum brjóstið." Hinn gullni,
Ijósi og ungi ferskleiki Teresu töfr-
aði hann eftir það villta nautnalíf,
sem hann hafði lifað, frá því að
hann kom frá Ítalíu. Hann hafði
lifað taumlausu óreglulífi síðustu
þrjú árin, allt frá því að hann kom
til Ítalíu og hóf þar útlegð þá, sem
hann hafði sjálfur dæmt sig til.
Ástarævintýri hans með Mariönnu
Segati, konu vefnaðarvörukaupj
manns, og Margaritu Cogni bakara-
frú höfðu verið aðalumræðuefnið í
dagstofum Feneyjar, þótt alls kon-
ar ástalíf, bæði utan hjónabands
sem innan, skorti sízt þar í borg. Og
enginn vissi tölu á öllum þeim
skyndiástarævintýrum, sem hann
hafði stofnað til landshornanna á
milli á Ítalíu.
Hið ómótstæðilega aðdráttarafl
Byrons gagnvart konum var þegar
vel þekkt, jafnvel langt út fyrir
landsteina heimalands hans, Eng-
lands. En heima í Englandi hafði
hann skilið eftir heilar hrannir af
brostnum hjörtum hvar sem hann
fór, allt frá fyrstu æskuárum. Þar
mætti einna helzt nefna bernskuást
hans til Mary litlu Chaworth, sem
hafði svo rík áhrif á skrif hans síð-
ar á ævinni.
Og 24 ára að aldri hafði hann svo
hitt og töfrað hina óstýrilátu og
fíngerðu, en jafnframt einþykku
lafði Caroline Lamb, sem trúði dag-