Úrval - 01.10.1968, Qupperneq 72
70
ÚRVAL
vegna mín, og veikleiki eigin hjarta
eru ofjarlar slíkra fyrirætlana, og
ég mun varla geta leyft mér að
framkvæma þær.“
Er uppreisn Grikkja gegn Tyrkj-
um, sem hann átti hér við, óx að
styrkleika, gátu engin bönd haldið
aftur af honum. Og að lokum fékk
hann leyfi Teresu til þess að halda
burt. Hún hélt aftur til föður síns
í Bologna, og árið 1823 lagði Byron
lávarður af stað í stríðið.
Komu hans til Grikklands var
alls staðar fagnað með húrrahróp-
um, því að það mikla frægðarorð,
sem af honum fór, hafði þegar bor-
izt þangað á undan honum, auk
fréttanna um hinn mikla áhuga
hans á byltingarstarfseminni á ítal-
íu. Hann ferðaðist landshornanna á
milli í Grikklandi, og alls staðar
vakti koma hans trylltan fögnuð
manna og styrkti þá ákveðni upp-
reisnarmanna að vinna sigur. Hann
lagði einnig fram sinn skerf til þess
að afla fjár þeim til stuðnings, bæði
nafn sitt og starfskrafta. Og tvisv-
ar reyndi hann að taka þátt í raun-
verulegum orrustum, en leiðtogar
byltingarinnar gátu að lokum sann-
fært hann um það eftir miklar for-
tölur, að hann væri of mikils virði
fyrir uppreisnarhreyfinguna til
þess að hætta á að láta lífið fyrir
byssukúlu óvinarins.
En í Missolongi á grísku sléttun-
um varð hann altekinn af hitasótt
á hinu raka og daunilla regntíma-
bili. Og hitasóttin tók ómakið af
Tyrkjunum. Hún vann fljótt bug á
honum. Hann var haldinn algeru
óráði stutta stund, og síðan lézt
hann á annan í páskum árið 1824
þrjátíu og sex ára að aldri. Og í
augum gervallrar grísku þjóðar-
innar . . . gervalls heimsins var það
dagur sorgarinnar.
Bréf, móttekið af skólastjóra einum, hljóðaði svo:
„Með tilvísun til bréfs yðar frá 22. september, þykir mér leitt að
burfa að tilkynna yður. að kvikmyndin „Það hlýtur að vera einhvers
staðar," er týnd og hefur aldrei fundizt."
E. A. Woods.
Á heimili nýgiftrar vinkonu minnar er gestaherbergi, sem er sjaldan
notað, og því er hún ekkert að hafa fyrir því að þurrka þar af né
hreinsa til á annan hátt, nema von sé á næturgestum. Dag einn fór
maðurinn hennar inn i herbergið til þess að leita að einhverju og
sá þá, að snyrtiborðið var þokið í ryki. Hann vildi vekja athygli konu
sinnar á þessu án nokkurra láta, og þvi skrifaði hann i rykið: „Ég
elska þig“.
Um viku síðar Þurfti hann að fara aftur inn í herbergið. Þá sá
hann, að Þessi orðsending hafi verið skrifuð í rykið fyrir neðan orð-
sendingu hans: „Ég elska þig iika“.
Sarah E. Luxton.