Úrval - 01.10.1968, Qupperneq 78
76
TJRVAL
legur maður, klæddur dökkum föt-
um, lokaði sig inni í snyrtiherbergi
á gamaldags veitingahúsi í Mem-
phis í Tennesse. Hann tók varlega
utan af riffli, sem hann var með,
hlöðnum mjög hættulegum skotum,
er rífa lófastóra holu í mannslíkam-
ann, þegar þau hæfa hann. Mað-
urinn fór síðan í sturtuklefann,
lyfti þar upp glugganum og kom
sér vel fyrir. Riffillinn var með
mjög dýrum og öflugum kíki og
beindi hann honum að svölum
Larraine hótelsins, sem var í 205
feta fjarlægð.
Allt í einu var gripið í húninn á
hurð snyrtiherbergisins. „Er
þarna einhver," var hrópað fyrir
utan. Maðurinn með riffilinn varð
skelfingu lostinn og gætti þess að
láta ekkert heyra í sér. Að lokum
heyrðist fótatak, er smám saman
fjarlægðist, og sá, sem fyrir innan
var, dró andann léttar.
Klukkan 6.01 gekk Martin Lut-
her King fram á svalir hótelsins,
beint í færi við byssu morðingjans.
Skot reið af, og dr. King féll látinn
niður á svalirnar.
Maðurinn inni í snyrtiherberginu
bjó um riffilinn og flýtti sér eftir
dimmum ganginum. „Var einbver
að skjóta,“ hrópaði Willie Ans-
chutz, einn af leigendunum. „Já, það
heyrðist mér,“ sagði ókunni maður-
inn brosandi. Skömmu síðar sást
hvítur Mustang bíll hverfa út í
rökkrið.
Eltingaleikurinn hófst örfáum
mínútum eftir morðið, þegar lög-
reglumaður frá FBI hringdi til
Washington . „Við munum beita
öllum ráðum og mannafla til að
hafa uppi á glæpamanninum,“ sagði
J. Edgar Hoover, yfirmaður FBI.
Fyrstu klukkustundirnar eftir
morðið leitaði lögreglan í Memphis
dyrum og dyngjum og komst að
raun um, að skotið hefði verið á
King frá veitingahúsinu, beint á
móti hótelinu, sem hann dvaldi í.
Lögreglumennirnir frá FBI yfir-
heyrðu alla gestina og rannsökuðu
snyrtiherbergið mjög nákvæmlega
og gátu þegar um kvöldið gert sér
nokkra hugmynd um, hvernig
morðið hafði verið framið. „Maður-
inn, sem við grunum um glæpinn,
heitir John Willard,“ símaði einn
þeirra til Hoovers. „Hann er meðal-
maður á hæð, skolhærður og hefur
líklega ör á enninu.“
í húsi skammt frá hótelinu, fann
lögreglan Remington 30.06 veiði-
riffil, ábreiðu af rúmi og ferða-
tösku, sem skilið hafði verið eftir í
dyragættinni. Tólf tímum eftir
morðið var búið að rannsaka fingra-
för á rifflinum og reyna hann í
rannsóknastofu FBI. Einnig kom í
Ijós, að riffillinn var keyptur hjá
Aeromarine Supply Co. í Briming-
ham. Kaupandinn var Harvey Low-
myer, er komið hafði í verzlunina
30. marz. Keypti hann einnig kíki
á riffilinn og pakka af skotum.
En mörg ljón voru á veginum.
Fingráförin á rifflinum voru of
ógreinileg til þess að hægt væri að
komast strax að raun um af hverj-
um þau væru. Og hvergi var nokkr-
ar upplýsingar að fá um John Will-
ard, er leigt hafði í veitingahúsinu
eða Harvey Lowmyer, sem keypti
riffilinn.
Að morgni þess 11. apríl frétti