Úrval - 01.10.1968, Síða 79
LEITIN MIKLA
77
húsmóðir í Atlanta í Georgíu, 330
mílur frá Memphis, að FBI leitaði
að hvítum Mustang bíl. „Eg sá
mann leggja sams konar bíl fyrir
utan íbúðina mína morguninn eftir,
að dr. King var myrtur,“ sagði hún
við lögregluna, ,,og bíllinn er þar
enn.“
Lögreglumennirnir rannsökuðu
bílinn hátt og lágt. Á sætisáklæð-
inu fundust grænleitir þræðir, svip-
aðir þeim, er voru á rúmábreiðunni,
sem fannst með rifflinum í Mem-
phis. Þarna var komið samband á
milli bílsins og riffilsins.
Bíllinn leiddi ýmislegt fleira í
ljós. Það upplýstist, að eigandinn
hafði verð á honum í Mexikó síð-
astliðið haust og einnig, að nýlega
var gert við bílinn í Los Angeles.
Og loks fannst nafnið á eigandan-
um á skrá bifreiðaeftirlitsins, en
það var: Eric Starvo Galt, 2608
Highland Avenue, Birmingham,
Alabama.
I töskunni, er fannst ásamt riffl-
inum í Memphis, voru nærföt með
merki frá einhverju þvottahúsi. En
að komast að raun um frá hvaða
þvottahúsi merkin voru, en þau
skipta þúsundum í Bandaríkjunum,
virtist óhugsandi. Lögreglumennirn-
ir voru samt staðráðnir í að gefast
ekki upp og fundu eftir mikla leit,
að merkin voru prentuð á nærföt-
in í vél, sem framleidd var í Syra-
cuse. Seljendur vélarinnar fullyrtu,
að hún væri líklega í einhverju
þvottahúsi í Los Angeles.
Nú þótti líklegt, að morðingjann
væri að finna í vesturhluta Banda-
ríkjanna. Þess vegna voru 300 leyni-
lögreglumenn settir til að rannsaka
Los Angeles og svæðið þar í kring.
„Við komumst að raun um, að
Eric S. Galt var í dansskóla í Birm-
ingham,“ sagði einn leynilögreglu-
maðurinn við stjórnanda leitarinn-
ar í Los Angeles. „Rannsakið þá
vel alla dansskóla borgarinnar,“
sagði yfirmaðurinn.
Brátt kom í ljós, að Eric S. Galt
hafði stundað dansnám í einum
skólanna frá desember og fram í
febrúar. Enginn mundi greinilega
eftir honum, nema helzt það, að
hann var mjög feiminn og einmana.
Einum danskennaranna hafði hann
sagt, að sig langaði til að ganga í
veitingaþ j ónaskóla.
Lögreglan tók þegar að spyrjast
fyrir um Eric Starvo Galt í ýmsum
veitingaþjónaskólum og áður en
leið á löngu upplýstist, að hann
hafði stundað nám í einum þeirra
og útskrifazt þaðan. Þegar lögreglu-
mennirnir voru að ræða við skóla-
stjórann sáu þeir mynd af nemend-
unum, sem höfðu nýlega útskrif-
azt. Spurðu þeir hann, hvort Galt
væri á myndinni. Hann kvað svo
vera og benti þeim á hann. Mynd-
in var send í skyndingu til aðal-
stöðva FBI í Washington.
Hún líktist mjög lýsingum af
manninum, sem sézt hafði koma út
úr snyrtiherberginu á veitingahús-
inu í Memphis, og einnig kaupanda
riffilsins í Birmingham. Þúsundir
mynda voru nú settar upp á hótel-
um, veitingahúsum og vínbörum í
Kaliforníu og fljótlega kom í ljós,
að Willard-Lowmyer-Galt hafði bú-
ið í einu hverfi Los Angeles, frá
miðjum nóvember 1967 til 17. marz