Úrval - 01.10.1968, Síða 95
BÁRA BLÁ
93
sögur fara af, myndaðist í ofsaleg-
um hvirfilvindi á Kyrrahafi árið
1933, en bandaríska olíuflutninga-
skipið Ramapo lenti einmitt í því
fárviðri. Samkvæmt nákvæmlega
skjalfestum og eiðsvörnum yfirlýs-
ingum og siglingafræðilegum út-
reikningum, sem yfirmenn skipsins
framkvæmdu, sást heil runa af öld-
um, sem hækkuðu og hækkuðu, úr
80 fetum í 90 fet og svo í 100 fet
og allt upp í 107 fet, og ein þeirra
mældist vera jafnvel 112 fet frá
öldudal til öldufalds! Slíkt vekur
undrun manns. Úthafið er svo risa-
vaxið, og mennirnir eru aðeins sem
örfáir deplar á því ægiflæmi, depl-
ar, sem koma og fara. Því hljóta að
hafa geisað þar jafnvel enn verri
stormar, sem hafa myndað enn
risavaxnari öldur, en enginn mað-
ur fékk augum litið og ekkert hef-
ur því heyrzt um.
Öldurnar, sem sjá má brotna við
strendur landsins, eru yfirleitt ekki
svona háar. Ölduhæðarmælar við
strendur Bandaríkjanna hafa sýnt,
að um 80% aldanna eru undir 4
fetum á hæð og að þær nái yfirleitt
ekki 10 feta hæð nema í vetrar-
stormum, þegar fátt fólk er á ferli
til þess að verða vitni að slíku. Jafn-
vel skjólmegin við strönd Oohu-
eyjar á Hawaiieyjum, sem er
þekkt fyrir háar brimöldur, er það
óvenjulegt, að það komi slíkir
stormar, að þeir megni að mynda
20 feta háar öldur. Að minnsta
kosti þótti slíkt atvik svo í frásög-
ur færandi, að það var dyggilega
skráð í bækur sem algert met þar.
Þið ættuð að fara niður á strönd
Oregon og Washingtonfylkja að
vetrarlag'i til þess að. sjá mjög háar
brimöldur. Skráð hefur verið, að
brimöldur hafi þar orðið með þeim
hæstu í gervallri veröldinni, þ.e.
35—40 fet á hæð.
HVERSU LANGA LEIÐ FER
ALDAN?
Öldurnar breytast úr stóröldum
í undiröldu eða ylgju, strax og öld-
urnar hætta að eyða orku sinni í
árekstrum og ofsa stormsins, sem
myndaði þær. Þær taka að vagga
mjúklega. Þær þjóta áfram með
hraða stormsins, sem myndaði þær
(stundum allt að 70 mílna hraða á
klukkustund), og þær geta flutt
orku stormsins án orkutaps hálfa
leið í kringum hnöttinn.
Arið 1949 rannsökuðu vísinda-
menn margar öldulestir, sem brotn-
uðu á strönd Cornwallskaga í Eng-
landi. Þeir drógu þá ályktun af
rannsókn sinni, að öldulestir þessar
hljóti allar að hafa myndazt 4 dög-
um áður í stormi úti fyrir strönd
Bandaríkjanna eða með öðrum orð-
um í 3000 mílna fjarlægð. Þegar
þeir rannsökuðu veðurkortin, kom-
ust þeir að því, að það hafði ein-
mitt geisað fellibylur úti fyrir
sirönd Floridaskaga á þeim tíma og
stað. Nú sýna öldumælar á Kyrra-
hafinu oft, að brimöldur við strend-
ur Kaliforníu hafa verið reknar
áfram af orku, sem myndaðist á
sjónum nokkrum dögum áður í
stormi úti fyrir strönd Ástralíu.
Til þess að fá einhverja hugmynd
um þá orku, sem flyzt með öldun-
um, skulið þið mæla hana, þegar
hún flytur orku sína í áfangastað,
t. d. skellur á ströndinni. Alda, sem