Úrval - 01.10.1968, Blaðsíða 105
LIFANDI DAUÐI TIL SÖLU
103
Hasan sagðist eiga 35 kíló og íór
fram á 180 lírur fyrir hvert kíló,
sem var tvöfalt það verð, sem rík-
ið borgar bændunum fyrir ópíum-
ið. Mustafa prúttaði við hann, þang-
að til þeir höfðu komið sér saman
um 150 lírur fyrir kílóið. Og þá
fylgdi bóndinn þeim út í hlöðu. Þrír
strigapokar, troðfullir af opíumkúl-
um, voru dregnir upp undan hey-
stabba, en þar höfðu þeir verið
grafnir niðri í holu. Mustafa skoð-
aði innihaldið í krók og kring, en
að lokum varð hann ánægður. Svo
setti hann kúlurnar aftur í pokana,
batt fyrir þá og innsiglaði hvern
hnút með bræddu vaxi, sem hann
merkti svo með sínu sérstaka ein-
kenni. Síðan skráði hann nafn
Hasans, magn ópíumsins og verð í
litla vasabók. Bóndanum yrði svo
greitt andvirðið, þegar hann af-
henti pokana. Emin ætlaði að skýra
frá því síðar, hvar og hvenær hann
ætti að afhenda þá. Svo kvöddu
gestirnir.
Mustafa hélt nú bæ af bæ, og að
tveim vikum liðnum hafði hann
merkt sér hálft tonn af hráópíumi
með sínu sérstaka merki. Nokkr-
um nóttum síðar lagði Emin af
stað með hóp bænda. Þeir voru 22
að tölu og voru vopnaðir rifflum
og skammbyssum, ef ske kynni, að
þeim yrði gerð fyrirsát. Þeir héldu
til afskekktrar fjallshlíðar, og þeir
héldu allir á innsigluðu strigapok-
unum sínum, sem voru úttroðnir
af ópíumkúlum. Mustafa var kom-
inn þangað í vörubifreið. Hann
skoðaði innsigli sín í krók og kring
og borgaði síðan bændunum and-
virði sekkjanna í reiðufé. Hver
ópíumpoki var síðan settur í nylon-
poka. Og í hann voru síðan settar
kamfórukúlur til þess að dylja hinn
sæta, megna ilm af ópíuminu. Sekk-
irnir voru síðan settir í tómar olíu-
tunnur. Og svo lagði Mustafa af
stað í hina löngu ökuferð til tyrk-
nesku landamæranna.
KANÍNA Á FLÓTTA
Hann hét raunar Celebi, en hann
var alltaf kallaður Jack kanína.
Hann var slíkur hlaupagikkur, að
hann hafði við hestum á stökki.
Hann var hávaxinn, grannur og
stoltur. Hann gat hlaupið í sífelld-
um beygjum, kastað sér endilöng-
um til jarðar eða stokkið heljar-
stökk og hleypt af byssu sinni á
sama augnabliki og hann rétti úr
sér að nýju.
í augum Tyrkja, sem sjá margar
bandarískar kvikmyndir um Villta
vestrið, er allt svæðið við sýrlenzku
landamærin Villta austrið. Það eru
mörg þorp þarna við landamærin,
sem eru samtals 545 mílur á lengd.
Það þorp á þessu svæði, sem nefna
mætti „Þurragil“, er þorpið Kilis,
þorpið, þar sem ekki er um að ræða
nein lög og reglur önnur en þau,
sem fyrirfinnast í hjörtum og byss-
um karlmannanna, sem þar búa.
„Hafir þú fæðzt í Kilis, ertu fæddur
smyglari,“ segir alkunnugt orða-
tiltæki. Og Jack kanína var beztur
af öllum smyglurunum í Kilis.
Mustafa var gamall vinur hans, og
þegar hann afhenti Jack kanínu 500
kíló af ópíumi, sem hann átti að
koma yfir sýrlenzku landamærin,
tók hann tilboðinu um hættuför
þessa fegins hendi.