Úrval - 01.10.1968, Síða 109
LIFANDI DAUÐI TIL SÖLU
107
inu og þeir ekki hann. En samt
mundi hann vita, að þeir væru á
næstu grösum. Ef varðmennirnir
færu með konu hans til næsta varð-
skýlis til frekari yfirheyrslu, ætl-
uðu smyglararnir að halda áfram
yfir landamærin án minnstu
áhættu. En færi svo, að varðmenn-
irnir fylltust grunsemd og byrjuðu
að leita, áttu „hlaupararnir“ að
dreifa sér í flýti og fara sinn
í hverja áttina.
Nú kom konan að síðustu hindr-
uninni, það var gaddavírsgirðing.
Hún beygði sig niður og sveigði til
hliðar nokkra strengi, sem Celebi
hafði klippt í sundur fyrir nokkr-
um nóttum og fest lauslega sam-
an aftur, þannig að engin verks-
ummerki sæjust í fljótu bragði.
Hinum megin við gaddavírsgirðing-
una tók við annað sléttað og rak-
að svæði og svo þar fyrir hand-
an annað jarðsprengjusvæði. Frá
árinu 1960 hefur þessum jarð-
sprengjum verið komið fyrir í belt-
um, sem eru 10—15 metra breið og
allt að 90 metra löng.
Halarófan mjakaðist varlega
áfram, þangað til hún var komin
yfir jarðsprengjubeltin. Þá kom
hún á svæði, sem varið var af ríð-
andi varðmönnum. Skyndilega fann
Jack kanína, að það var togað
snöggt í kaðalinn tvisvar sinnum.
Það var merkið. Og hann heyrði
glymjandi hófatak. Halarófan stað-
næmdist tafarlaust. Celebi vissi, að
konan hans hafði nú stanzað og að
hún lagði við hlustirnar. Hófatak-
ið hætti skyndilega, og heyrðist að-
eins hljóðið í vindinum. Svo heyrð-
ist hófatakið aftur, en svo dofn-
aði það smám saman, þangað til
það dó út í fjarska. Celebi létti, og
hann brosti við. Það var yfirleitt
skipzt á skotum, þegar fundum
varðmanna og smyglara bar sam-
an. Fyrir nokkrum árum voru 5
varðmenn drepnir og 17 illa særð-
ir í viðureignum við sýrlenzku
landamærin. Miklu fleiri smyglar-
ar eru drepnir eða særðir á ári
hverju, en nákvæmari tölu þeirra
er haldið leyndri.
Að lokum komu smyglararnir að
hinum raunverulegu landamærum
Tyrklands og Sýrlands. Það er
hæðótt svæði, þrjár mílur á breidd,
„einskis manns land“, þar sem all-
ir óviðkomandi geta búizt við því
að verða skotnir fyTÍrvaralaust.
Tyrklandsmegin er fjöldi vélbyssu-
hreiðra. Á milli þeirra er allt frá
hálfri mílu upp í nokkrar mílur,
og í hverju hreiðri eru 25 hermenn.
En smyglararnir óttast ekki þessi
vélbyssuhreiður. Aðeins hinir fá-
vísu viðvaningar eru svo heimskir,
að þeir komist innan skotmáls.
Celebi og flokkur hans skokkaði
síðan heill á húfi inn í Sýrland.
Þeir stefndu að stað, sem var mitt
á milli landamæranna og bæjarins
Azaz. Mennirnir hlupu allgreitt, og
þeir virtust alls ekki finna fyrir
því. Þeir voru á ýmsum aldri. í
þessum hluta heims, þar sem slík
hlaup eru atvinnugrein, getur sex-
tugur maður hlaupið eins hratt og
15 ára unglingur, sé leiðin nógu
löng.
Fjarlægðin frá Kilis til áfanga-
staðarins í Sýrlandi var 8 mílur. Og
fyrri ferðin tók 90 mínútur. Mustafa
beið þar við vegarbrúnina og heils-